Ætla að vekja athygli á Vestfjörðum Stefán Árni Pálsson skrifar 7. apríl 2014 13:56 Frá vinstri; Baldvin, Díana og Einar Ben. mynd/aðsend
Sveitarfélögin á Vestfjörðum ásamt samstarfsaðilum á landsvísu og ferðaþjónum á Vestfjörðum hafa ákveðið að fara af stað í þriggja ára markaðsátak en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Markaðsstofa Vestfjarða. Verkefninu verður stýrt af Markaðsstofu Vestfjarða en þetta er stærsta markaðsverkefnið sem sveitarfélögin hafa farið í frá upphafi. Verkefninu er ætlað að vekja athygli á Vestfjörðum sem áfangastað ferðamanna og ýta undir þá jákvæðu ímynd sem Vestfirðir hafa nú þegar. Verkefnið snýst að töluverðu leyti um starfrænt ferðalag um Vestfirði sem verður samansett af áhugaverðu myndefni sem sýnir allt það sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða. Það eru mjög margir sem þurfa að koma að borðinu til þess að svona stórt og ítarlegt verkefni geti gengið upp, ber þar að nefna samstarfsaðila líkt og Icelandair, Flugfélag Íslands, Hertz, Símann, N1 og ferðaþjónar á Vestfjörðum. Markaðsátakið verður unnið með Tjarnargötunni og segir Díana Jóhannsdóttir markaðsfulltrúi Markaðsstofu Vestfjarða þetta vera spennandi tíma framundan í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og gaman sé að sjá hversu vel allir taki í það að vinna að því að koma Vestfjörðum á kortið. „Við erum ákaflega spenntir fyrir þessu flotta verkefni. Við erum að byrgja okkur upp af nýjum búnaði og hlökkum til að fanga íslenska náttúru og koma henni til skila á nýstárlegan máta,“ segir Einar Ben, annar eigandi Tjarnargötu.
Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira