L-listinn og Bæjarlistinn sameinast Samúel Karl Ólason skrifar 7. apríl 2014 22:19 Vísir/Auðunn
L-listinn, Listi fólksins, og Bæjarlistinn á Akureyri munu sameinast og bjóða fram einn sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum þann 31. maí. Í tilkynningu segir að boðið verði fram undir nafninu L-listinn, bæjarlisti Akureyrar. Listabókstafurinn verður L. Þá segir að frambjóðendur verði kynntir á næstu dögum sem og megináherslur framboðsins. L-listinn fékk sex fulltrúa kjörna og Bæjarlistinn einn í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Í tilkynningunni segir að viðræður um sameiningu hafi hafist nokkru en endanleg ákvörðun verið tekin í dag. Oddvitar listanna kjörtímabilið 2010-2014, Geir Kr. Aðalsteinsson L-lista og Sigurður Guðmundsson Bæjarlistanum, segjast ánægðir með niðurstöðuna. „L-listinn og Bæjarlistinn eru um margt svipuð framboð og hafa bæði það meginmarkmið að stuðla að hagsmunum og framgangi Akureyrar og bæjarbúa en vera um leið óháð landsmálapólitík. Að baki okkur er stór hópur fólks sem hlakkar til að vinna áfram að bæjarmálunum næstu árin, reynslunni ríkara eftir viðburðaríkt kjörtímabil,“ segir Geir. „Bæjarlistinn var nýtt framboð í síðustu kosningunum og hefur starfið í bæjarstjórn verið ánægjulegt. Frá upphafi höfum við átt gott samstarf við L-listann sem hefur styrkst eftir því sem liðið hefur á kjörtímabilið. Traust hefur ríkt á milli okkar og ágreiningur um einstök mál ekki haft áhrif þar á. Í mínum huga hefur sameining framboðanna verið rökrétt skref um nokkurt skeið,“ segir Sigurður.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira