Tilskipun um gagnageymslu dæmd ólögmæt Samúel Karl Ólason skrifar 8. apríl 2014 18:43 Píratar skora á Alþingi að fella 42. grein laga um fjarskipti úr gildi tafarlaust. Vísir/GVA
Evrópudómstóllinn í Lúxemborg úrskurðaði í dag gagnageymdartilskipun Evrópusambandsins, um að fjarskiptagögn séu geymd í 6 til 24 mánuði, ólögmæta. Tilskipunin brýtur gegn meðalhófsreglunni. Fjallað var um málið á Vísi fyrr í dag. Í tilkynningu frá Pírötum, segir að lagabreytingar muni eiga sér stað í ESB og þeim EES-aðildarríkjum sem tekið hafi upp tilskipunina. Þá annað hvort til þess að afnema hana eða bæta úr þeim annmörkum sem á henni eru. Í þeim fjarskiptagögnum sem geymd eru í 6 til 24 mánuði sést hver hafði samban við hvern, hvenær og hversu lengi. Á það bæði við um símtöl og annarskonar fjarskipti, svo sem heimsóknir á vefsíður og tölvupóstsendingar. „Gögnin geta nýst til að fylgjast með ferðum fólks, áhugamálum, og samskiptum við vini og vandamenn, en margar rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsleysi þessara aðgerða í þágu löggæslu. Samkvæmt danskri tölfræði var meðal Dani skrásettur vegna gagnageymdar á c.a. 6 mínútna fresti, eða um 225 sinnum á dag,“ segir í tilkynningu Pírata. Þá segir að efnislega hafi þessi tilskipun verið útfærð á Íslandi með 42. Grein laga um fjarskipti 81/2003, með breytingu árið 2005. Hún hafi aldrei verið formlega innleidd. „Alþingi ætti að taka mark á þessum dómi og fella brott 42. gr. fjarskiptalaga tafarlaust.“ „Píratar vilja vekja máls á þessum úrskurði í ljósi þess hve gróflega þau vega að friðhelgi einkalífsins. Í grófum dráttum má segja að um forvirkar rannsóknarheimildir sé að ræða með öllum þeim siðferðislegu álitamálum sem slíkum heimildum fylgja.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira