Skilur konur sem fara út í vændi 8. apríl 2014 21:45
Hulda Valdís Önundardóttir, móðir langveiks drengs, segist skilja konur sem fara út í vændi en hún hefur ekki fengið laun síðan í desember. Þá tók hún leyfi frá vinnu og á meðan þarf fjölskyldan að reiða sig á 190 þúsund krónur á mánuði en það eru útborguð laun fjölskylduföðursins. Þetta kom fram í sjónvarpsþættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. Hulda Valdís er móðir Arnars Pálma Eiríkssonar, tveggja og hálfs árs drengs, en hann hefur glímt við ýmis veikindi frá fæðingu. Þegar Arnar litli var rúmlega ársgamall fór að bera á blæðingum í hægðum hans og þá kom í ljós að hann var með sjaldgæfan sjúkdóm. Hluti af ristli hans var fjarlægður vegna góðkynja blóðæxlis sem var orðið það stórt að það stíflaði ristilinn. Síðan þá hefur hann undirgengist fjölda aðgerða og nú síðast á dögunum en ekki hefur tekist að stöðva blæðinguna að fullu. Fjölskyldan býr í Neskaupsstað og þarf reglulega að koma í bæinn vegna veikindanna. „Þetta er staðan hjá okkur í dag, það eru bara fleiri ferðir suður, fleiri rannsóknir og það þarf að fylgjast með honum.” Ferðirnar í bæinn hafa verið þrjár á þessu ári og koma til með að verða fleiri. Hulda Valdís segist ekki hafa fengið neina af þeim greiddar. Það sé sérstaklega erfitt þar sem hún hafi ekkert geta unnið síðustu mánuði vegna veikinda Arnars Pálma og tekjur eiginmannsins hafa skerst. „Þær hjá sjúkratryggingunum vilja meina að við eigum bara rétt á tveimur ferðum á ári en við erum að koma suður til að hitta sérfræðing. Við erum ekki að koma suður til að fara á djammið. Við eigum að fá þessar ferðir greiddar en það er skiljanlegt að það sé erfitt að fá þetta því það er fullt af fólki að svíkja kerfið. Þetta bitnar á þeim sem ekki eru að því.” „Ég skil konur sem fara út í vændi en ég hef ekki haft nein laun frá því um mánaðamótin nóvember/desember. Þetta er rosalega erfitt og alveg ömurlegt.” Hulda segir að ekki væri mögulegt fyrir fjölskylduna að flytja til Reykjavíkur og vera nær spítalaþjónustu þar sem leiguverð á höfuðborgarsvæðinu sé of hátt. „Við leigjum á 60 þúsund krónur á mánuði og við værum örugglega bara á götunni. Við höfum ekki getað borgað leiguna undanfarna mánuði. Foreldrar mínir hafa algjörlega séð um það.” Tryggingastofnun ríkisins greiðir út foreldragreiðslur til foreldra langveikra barna sem þurfa að leggja niður störf. Hulda Valdís fékk synjun þegar hún sótti um greiðslurnar og fékk þau svör að Arnar Pálmi falli ekki inn í þann ramma sem þar er settur. „Hann er ekki með krabbamein, hann er ekki með hrörnunarsjúkdóm, hann er ekki fjölfatlaður og þar með fellur hann ekki inn í þennan ramma. Hann er samt með sjúkdóm sem reglulega þarf að fylgjast með.” Segir Hulda Valdís. „Þetta barn þarf umönnun og ég skil ekki afhverju þeir sjá það ekki. Þetta er eins með mann sem missir fótinn og þarf að sanna að fóturinn hafi ekki vaxið á hann aftur. Þetta er bara fáránlegt kerfi og það þarf að laga þetta til”. Hulda Valdís segir að það myndi muna miklu ef foreldragreiðslurnar færu í gegn. „Þá kæmi það bara eins og laun hjá mér. Þá gætum við allavega borgað leigu. Þó það væri ekki nema bara leigu”. Velunnarar fjölskyldunnar stóðu að söfnun fyrir fjölskylduna þar sem þrjú hundruð þúsund krónur söfnuðust. Hulda Valdís segist hafa náð að borga yfirdráttarheimildina og er gríðarlega þakklát þeim sem lögðu söfnuninni lið. Styrktarreikningurinn er ennþá opinn fyrir þá sem vilja leggja fjölskyldunni lið. 1106-05-400765 og kt: 140983-3499. „Ég er stundum komin að því að gefast upp, nenni þessu ekki, nenni ekki að standa í þessu. Auðvitað er ekki í boði að gefast upp.” Hulda Valdís vonast eftir því að Arnar Pálmi nái á endanum fullum bata og geti lifað eðlilegu lífi. Hún vonast einnig eftir því að geta sjálf farið út á vinnumarkaðinn sem fyrst.
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Fleiri fréttir Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Sjá meira