Óvissan er háskólanemum erfið Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 9. apríl 2014 14:52
Ekki liggur fyrir hvenær lokapróf í Háskóla Íslands verða ef af verkfalli háskólakennara verður. „Það eina sem er víst er að þau verða,“ segir María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. „Miðað við það sem ég hef heyrt mun allt ferlið frestast um að minnsta kosti þrjár vikur,“ segir María. Stjórn félags háskólakennara hefur boðað til verkfalls en þetta staðfesti Jörundur Guðmundsson, formaður félags háskólakennara, í samtali við fréttastofu fyrir stuttu. Takist ekki að semja við ríkið mun verkfallið fara fram á tímabilinu 25. apríl til 10. maí á lögbundnum próftíma. Óvissan um hvenær prófin verða er verst að sögn Maríu Rutar. „Þess vegna leggjum við kapp á að það verði samið strax og verkfallinu afstýrt. Þannig má eyða þessari óvissu.“ „Það virðist hafa farið af stað sú saga að prófin verði haldin ágúst,“ segir María Rut. Skólayfirvöld hafi þó lýst því yfir að próf verði haldin svo fljótt og auðið er. „Ég get ekki túlkað það á annan hátt en að prófin verði haldin í maí eða júní.“ Ef prófunum seinkar hafi það áhrif á greiðslur frá Lín. Lánin séu greidd út í eingreiðslu um mánaðarmótin maí, júní. Þorri háskólanema eru að sögn Maríu Rutar á fyrirframgreiddum lánum. Það þýðir að bankinn lánar nemendum vissa upphæð mánaðarlega sem þeir svo greiða í lok annar þegar þeir hafa staðist próf. „Það koma þarna mánaðarmót sem námsmenn munu ekki fá pening til þess að greiða reikninga,“ segir María Rut. Frestist prófin þýðir það líka að námsmenn geta ekki hafið störf jafn snemma og venja er. Flestir námsmenn eru byrjaðir að vinna í lok maí og byrjun júní. „Þannig missa þeir líka af launum sem þeir hefðu annars fengið.“ Annar vinkinn á það mál er hvað þetta komi atvinnurekendum illa. „Ég talaði við vinnuveitanda um daginn sem hafði ráðið til sín 100 nemendur í afleysingar í sumar,“ segir María Rut. Þar séu þá jafnvel starfsmenn sem hafi skipulagt sumarfrí út frá afleysingaráðningum og verkfallið hafi því líka áhrif á það fólk. „Aðallega er þetta alls herjar tekjutap fyrir námsmenn og gríðarleg óvissa. En þetta setur líka atvinnulífið úr skorðum þar sem það stólar á stúdenta í sumarstörf,“ segir María Rut.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Innlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent Fleiri fréttir Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Sjá meira