Þingmaður setur stórt spurningamerki við bílaleigur landsins Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 9. apríl 2014 17:58
Frá árunum 2008 hefur ferðamönnum fjölgað um 60 prósent. Á sama tíma hafa heildarskatttekjur ekki hækkað um nema 18 prósent. Þetta sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. Þá sagðist hann hafa fastar heimildir fyrir því að ástæða fyrir mikilli fjölgun bílaleiga væri meðal annars sú að stórfyrirtæki stofni leigur, kaupi bíla og leigi síðan starfsmönnum sínum á kostnaðarverði. Hann segir töluverðan fjölda bílaleiga vera án starfsmanna og án símanúmera. „Ég hef enga trú á að það sé markaður fyrir 140 bílaleigur á Íslandi,“ segir Þorsteinn í samtali við Vísi. Hann segir að ef farið sé í símaskrá eða á leitarvefi komi upp ótal nöfn á bílaleigum sem einungis séu með farsímanúmer. Ákveðinn afsláttur er veittur á bílaleigubíla sem fluttir eru inn hingað til lands. Almennt þurfa bílaleigur að hafa nýjar bifreiðar í útleigu í 15 mánuði áður en hægt er að endurselja þær. „Ég hef rökstuddan grun um að fyrirtæki séu að leika þennan leik.“ Þorsteinn segir þetta brýningu til fjármálaráðherra og iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem fara með þessi mál að taka þetta föstum tökum og fara yfir hvernig skattinnheimtu af ferðaþjónustu er háttað og hvert ekki sé hægt að bæta þar úr. Svört starfsemi í ferðaþjónustu hér á landi hefur aukist undanfarin ár samkvæmt nýrri greiningu efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Greiningin var kynnt á fundi Samtaka atvinnulífsins í morgun.
Mest lesið Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Bíll í ljósum logum Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Innlent Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Innlent Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Innlent „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Innlent Vaktin: Þjóðin býr sig undir illviðri Veður Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Innlent Fleiri fréttir Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Önnur furðuræða Jóns Péturs: „Þunn í Brussel, saga gjaldþrota drykkjukonu“ Auka viðbúnað í Grindavík vegna veðurs „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Loka Sorpu vegna veðurs Áfram í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar í Túnunum Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Bíll í ljósum logum Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjanesbæ Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Kolin hitna undir menningarhúsinu á Króknum Gert ráð fyrir að aðildarviðræður klárist á kjörtímabilinu Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin „Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Gera ráð fyrir að aðildarviðræður klárist fyrir lok kjörtímabilsins Tókust á um Borgarlínuna Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Rukka ekki skólagjöld í nýjum einkaskóla í Kópavogi Hæddist að Kristrúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“ Engin samtöl hafi átt sér stað um „fiskveiðikommissar“ Aflýsa hættustigi og rýmingum á Seyðisfirði Opinn fundur í utanríkismálanefnd um ESB atkvæðagreiðslu Burðardýr í tæplega fjögurra ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Ragnheiður Erla Bjarnadóttir er látin Sigmundur Davíð helsti áhrifavaldur á afstöðu Össurar í ESB-málinu Handtóku mann fyrir að stela dekkjum Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Sjá meira