Þingmenn sammála um að bæta kjör lífeyrisþega Heimir Már Pétursson skrifar 9. apríl 2014 19:31
Þingmenn allra flokka telja nauðsynlegt að bæta kjör elli- og örorkulífeyrisþega. Félagsmálaráðherra segir að nú þegar hafi skerðing kjara þeirra verið bæt töluvert en meira megi gera í þeim efnum. Þá ræddu þingmenn einnig svarta atvinnustarfsemi í ferðmannaþjónustunni á Alþingi í dag. Bráðabirgðaákvæði í lögum sem kom í veg fyrir að greiðslur almannatrygginga skertust krónu á móti krónu vegna greiðslu úr lífeyrissjóðum er fallið úr gildi og lýstu margir þingmenn áhyggjum sínum yfir því í dag. Birgitta Jónsdóttir þingflokksformaður Pírata hóf umræður á Alþingi í dag um stöðu elli- og örorkulífeyrisþega. Margir þeirra ættu ekki fyrir helstu nauðsynjum eins og mat og lyfjum og væru með kvíðahnút í maganum flesta daga. Brýnt væri að standa við loforð um að leiðrétta stöðu þeirra eins og stjórnarflokkarnir hefðu lofað. Þingmenn allra flokka tóku undir þetta. Þótt síðasta ríkisstjórn hefði reynt að hlífa þeim með allra lægstu bæturnar þyrfti að leiðrétta forsendubrest sem þessi hópur hefði orðið fyrir umfram aðra. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra sagði rétt að síðasta ríkisstjórn hefði hlíft þeim lakast settu en núverandi stjórn hefði einnig gert margt til að lagfæra kjör öryrkja og ellilífeyrisþega og dregið til baka skerðingu á kjörum þeirra frá árinu 2009. Félagsmálaráðherra sagði samstöðu ríkja á Alþingi um að gera vel í velferðarmálum og ræður fjölda þingmanna staðfesti það. Hún sagði þó margt hafa verið gert á fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar, leiðrétt skerðingu frá árinu 2009, hækkað frítekjumark vegna atvinnutekna og framlengt út þetta ár. En þingmenn ræddu einnig svarta atvinnustarfsemi í ferðamannaþjónustunni. Ferðamönnum hefði fjölgað um tugi prósenta á undanförnum árum en sú fjölgun hefði ekki skilað sér með samsvarandi aukningu tekna ríkissjóðs. Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokksins sagði bílaleigum hefði fjölgað mikið en margar þeirra hefðu hvorki skráð símanúmer né starfsmenn. Grunur léki á að bílar væri keyptir inn á bílaleigukjörum og þeir leigðir á kostnaðarverði til starfsmanna í ferðaþjónustunni og síðan seldur að nokkrum mánum liðum. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tók undir áhyggjur margra þingmanna af svartri atvinnustarfsemi í ferðamannaþjónustunni. Þannig hefði kortavelta erlendra ferðamanna aukist um 30 prósent á sama tíma og hafi skattekjur af ferðamönnum aukist um 10 prósent.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira