Berlínarferð hangir á bláþræði Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. mars 2014 14:20 Myndin af Jóni Eggert er fengin með góðfúslegu leyfi Skessuhorns. Vísir/Skessuhorn
Námsferð rúmlega tuttugu nemenda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga er nú í uppnámi vegna verkfalls framhaldsskólakennara. Fyrirhuguð brottför er á fimmtudaginn og bíða skólastjórnendur nú eftir því hvort launadeila kennara leysist fyrir þann tíma. Óvíst er hvort að þýskukennarinn við skólann geti farið með nemendum sínum til Berlínar, því óvíst er hvort það sé verkfallsbrot.Jón Eggert Bragason er skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Hann leitar nú lausna á málinu. „Á meðan kennaraforystan gefur okkur vonir um að deilan muni leysast á næstu dögum þá vil ég ekki slá ferðina útaf borðinu,“ útskýrir Jón Eggert.Búið að standa til lengi Langt er síðan sú ákvörðun var tekin að nemendur við skólann færu í námsferð til Berlínar. Nemendur hafa safnað fyrir ferðinni. Augljóst er að kostnaður við svona ferðalag er talsverður. „Ég er ekki með nákvæma tölu, en þetta er flug og gisting,“ útskýrir Jón Eggert og bætir við: „Miðarnir voru keyptir fyrir mörgum vikum og ferðin var hugsuð sem hluti af námsmati í áfanga.“ Jón Eggert er því í biðstöðu. „Það er eiginlega engin niðurstaða í málinu góð, nema að launadeilan leysist,“ segir hann.Leita til verkfallsstjórnar „Það sem við erum að skoða á þessari stundu er að leita til verkfallsstjórnar um þetta og sækja um undanþágu. Ég hitti kennarann á eftir og við munum funda um málið,“ útskýrir skólameistarinn. Aðrir kostir í stöðunni eru til dæmis að senda foreldra út með nemendum. Þá gætu spurningar vaknað upp um á hvers ábyrgð nemendur eru, á meðan þeir eru erlendis. Einnig gæti kennarinn farið með – en launalaust. „Það er ekkert sem bannar kennaranum að ferðast í verkfallinu og hann gæti tæknilega farið á þarna út og fara bara þá á eigin kostnað. Þá er spurning hvort það heiti að fara bara í kringum hlutinn,“ segir Jón Eggert. „Best væri ef verkfallið leysist eða þá ef undanþágur fáist fyrir ferðinni og það er verið að skoða þá lausn núna.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira