210 krónur geta skilið á milli lífs og dauða Stefán Árni Pálsson skrifar 20. mars 2014 15:38 Með því að senda sms-skilaboðin STOPP í símanúmerið 1900 gefur fólk 630 krónur. Visir/daníel
UNICEF á Íslandi og Kiwanisumdæmið Ísland Færeyjar taka í dag höndum saman og hvetja landsmenn til að leggja baráttunni gegn stífkrampa lið. Á níundu hverri mínútu deyr nýbökuð móðir eða nýburi úr þessum kvalafulla sjúkdómi. Engu að síður má með bólusetningu koma í veg fyrir hvert einasta dauðsfall af hans völdum. Samstarfið á Íslandi og í Færeyjum er liður í alþjóðlegri baráttu UNICEF og Kiwanis gegn stífkrampa. Meðal þess sem samtökin vilja vekja athygli á er að það kostar aðeins 210 krónur að bólusetja barnshafandi konu og ófætt barn hennar gegn þessari ömurlegu veiki. „Það er furðuleg tilhugsun að svo lág upphæð geti skilið á milli lífs og dauða,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Með því að senda sms-skilaboðin STOPP í símanúmerið 1900 gefur fólk 630 krónur eða sem nægir fyrir bólusetningu fyrir þrjár mæður og ófædd börn þeirra.Hálfrar aldar saga Kiwanis á Íslandi Um þessar mundir fagnar Kiwanis því að 50 ár eru liðin frá því að saga hreyfingarinnar hófst hérlendis með stofnun Kiwanisklúbbsins Heklu. Af því tilefni verður í dag opnuð sögusýning í Kringlunni þar sem gestir og gangandi geta fræðst um sögu hreyfingarinnar. Félagar í Kiwanis munu auk þess dreifa upplýsingum um samstarfið við UNICEF og mikilvægi þess að stöðva stífkrampa fyrir fullt og allt. Þótt bakterían sem veldur stífkrampa fyrirfinnist í öllum löndum jarðar hefur sjúkdómnum víðast hvar verið útrýmt með bólusetningu. Á árum áður var stífkrampi til að mynda landlægur meðal ungbarna á Íslandi og dánartíðni geysilega há. Í dag er hann er hins vegar nánast óþekktur á Vesturlöndum.Raunhæft að stöðva stífkrampa Tekist hefur að útrýma stífkrampa í 34 löndum frá síðustu aldamótum og lækka dánartíðni nýbura af völdum sjúkdómsins um hvorki meira né minna en 90% á tuttugu árum. Hann er þó enn að finna í 25 ríkjum. Samstarf Kiwanis og UNICEF er veigamikill þáttur í því markmiði að sigrast endanlega á stífkrampa. „Alþjóðlega Kiwanishreyfingin og UNICEF eiga að baki árangursríkt samstarf í baráttunni fyrir bættum lífsskilyrðum barna á heimsvísu. Nú leggjum við hér á Íslandi og í Færeyjum okkar lóð á vogaskálarnar í baráttu beggja samtaka gegn stífkrampa,“ segir Dröfn Sveinsdóttir, umdæmisstjóri Kiwanis á Íslandi og í Færeyjum. „Meirihluti mæðra og nýbura sem látast úr stífkrampa búa á svæðum þar sem konur eru fátækar og hafa takmarkaðan aðgang að heilsugæslu og upplýsingum um öruggar barnsfæðingar. Þetta eru mæður og börn sem við megum ekki bregðast.“
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira