„Maður má ekki hafa sjálfstæða skoðun“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 21. mars 2014 22:06 Gunnar Þórarinsson er bæjarfulltrúi flokksins í Reykjanesbæ. vísir/stefán
Gunnar Þórarinsson, sem hafnaði í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ, er ósáttur með framgang flokksforystunar í bænum. Gunnar er bæjarfulltrúi flokksins í Reykjanesbæ. Gunnar fékk ekki að vera í fimmta sætinu sem hann átti að vera í samkvæmt úrslitum prófkjörsins og var boðið það sjöunda sem hann hafnaði. Gunnar, sem sóttist eftir fyrsta sæti til annars sæti listans setur einnig spurningamerki við að allir frambjóðendurnir í prófkjörinu nema einn og formenn allra Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ hafi lýst yfir stuðningi við Árna Sigfússon bæjarstjóra í efsta sætið á listanum. Gunnar kvartaði undan því að formenn Sjálfstæðisfélaganna hefðu lýst yfir stuðningi við Árna og segir það brjóta gegn reglum flokksins. „Það er óleyfilegt að nota nafn flokksins í prófkjöri og mér finnst formennirnir hafa gert það með þessum hætti,“ segir Gunnar. Með því að lýsa yfir stuðningi við Árna hafi formennirnir notað titil sinn til þess að veita Árna aukið vægi í prófkjörinu. „Ég hafði samband við fólk upp í Valhöll sem sagði þetta vera ósiðlegt,“ útskýrir Gunnar.Má ekki hafa sjálfstæða skoðun Gunnar segir það hafa komið sér mjög á óvart að hann hafi ekki fengið sæti á lista flokksins. Gunnar fékk um þriðjung atkvæða í efsta sæti listans og er sáttur við það, sérstaklega ef mið sé tekið af þeim mikla stuðningi sem Árni Sigfússon fékk frá öðrum frambjóðendum. „Þetta lýsir nákvæmlega hvað er í gangi þarna hjá flokknum. Maður má ekki hafa sjálfstæða skoðun,“ segir Gunnar. Gunnar segist ekki vera búinn að gera upp við sig hvað hann gerir í framhaldinu og útilokar ekki að taka þátt í öðru framboði.
Mest lesið Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Innlent Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Innlent Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra Innlent Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Erlent Líkamsárás í verslunarmiðstöð Innlent Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Innlent Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Innlent Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Innlent Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innlent Vinstrið á blússandi siglingu Innlent Fleiri fréttir Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Ekið á mann í Þrengslunum Eins og síðast en „einu númeri minna“ Vilja ekki takmarka trúariðkun „umfram það sem brýnir almannahagsmunir krefjast“ Úrvalsdeild og neðri deild en restin í vandræðum Kennarar botna aftur ekkert í Ingu Sæland Lokun Hormússunds: Takmörkuð áhrif á áburðarverð til bænda í ár en óvíst um framhaldið Vinstrið á blússandi siglingu Eldur kviknaði í bíl Líkamsárás í verslunarmiðstöð Perutertan lifir af inngildingu heilsufæðis á Alþingi Telur ríkisstjórn skemma efnahaginn vísvitandi fyrir ESB-atkvæði Starfsmenn ráðuneytisins fengu egg í sérprentuðum öskjum en kennarar una ölmusu foreldra „Fólk var rosalega hrætt þegar það kom sjónvarp“ Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Innviðagjald og hækkun vasks eyðileggi samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Guðmundur orðaður við Flokk fólksins í Reykjavík Alvarleg mistök hjá barnaverndarþjónustu: „Við sofnuðum á verðinum“ Dönsk börn fá sem nemur fjórum auka kennsluárum Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Alvarleg mistök, dýrara í baðlónin og páskaveðrið Snekkjan fékk undanþágu frá hafnbanni Mætti með haglabyssu á lögreglustöðina á Hverfisgötu Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrirheit ríkisstjórnarinnar Sjá meira