Viðskipti innlent

Skífan kaupir Heimkaup.is

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Skífan er elsta afþreyingarverslun landsins.
Skífan er elsta afþreyingarverslun landsins. Vísir/Vilhelm
Skífan ehf. hefur keypt rekstur Heimkaup.is.

Í tilkynningu frá Skífunni segir að Heimkaup.is sé ein stærsta vefverslun landsins með yfir 8.500 vöruflokka frá um 650 vörumerkjum. Heimkaup.is var stofnað fyrir ári síðan og hefur heldur betur slegið í gegn á íslenskum neytendamarkaði en þúsundir Íslendinga nýta sér þjónustu Heimkaup.is til að gera kjarakaup.

Ágúst Guðbjartsson, framkvæmdastjóri Skífunnar, segir þetta skref í rétta átt.

„Framtíðin í sölu afþreyingarefnis er þarna. Salan fer í sífellt meiri mæli fram á netinu og viðskiptavinir okkar vilja geta verslað sínar vörur í rólegheitum úr þægindum heimilisins og Heimkaup.is smellpassar inn í okkar framtíðarsýn,“ segir Ágúst í tilkynningunni.

Skífan, sem er elsta afþreyingarverslun landsins, var stofnuð árið 1976. Skífan rekur tvær verslanir undir nafninu Skífan/Gamestöðin, annars vegar í Kringlunni og hins vegar í Smáralind.

„Nú bætum við enn einum þjónustukjarnanum við og ég veit að viðskiptavinir okkar eiga eftir að taka þessari viðbót fagnandi. Þetta er stórt skref fyrir okkur og hér ríkir mikil spenna með framtíðina,“ segir Ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×