Hafa gefið rúma fjóra milljarða til SOS Barnaþorpanna Stefán Árni Pálsson skrifar 27. mars 2014 17:06 Meira en 85% upphæðarinnar hefur nýst í verkefni samtakanna erlendis. mynd / aðsend
Á þeim tuttugu og fimm árum sem liðin eru frá stofnun SOS Barnaþorpanna á Íslandi hafa landsmenn stutt starf samtakanna um 4,3 milljarða en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum. Meira en 85% upphæðarinnar hefur nýst í verkefni samtakanna erlendis þar sem að umsýslukostnaður SOS á Íslandi hefur aldrei verið yfir 15%. Um 12 þúsund Íslendingar eru styrktaraðilar SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Þar af eru 6000 manns styrktarforeldar, en þeir aðilar styrkja eitt ákveðið barn. Alls hafa Íslendingar verið styrktarforeldrar 14 þúsund barna á síðastliðnum 25 árum. „Þegar maður skoðar listann yfir þá sem gerðust styrktarforeldrar á fyrstu árunum, í kringum 1990, kemur skemmtilega á óvart hve margir þeirra eru enn að styrkja börn. Þau börn sem þeir styrktu fyrst hafa lokið námi og eru komin með fjölskyldu og vinnu, svo styrktarforeldrarnir hafa tekið að sér ný og yngri börn í staðinn. Svona á barnahjálparstarf að vera. Árangurinn er svo áþreifanlegur,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Í tilefni 25 ára afmælis SOS Barnaþorpanna á Íslandi er alþjóðaforseti samtakanna, Siddartha Kaul, kominn til landsins. Hann verður hér um helgina og mun meðal annars fara á fund með forseta Íslands. Kaul er Indverji en hann var kosinn alþjóðaforseti SOS árið 2012. Hann er aðeins þriðji einstaklingurinn til þess að gegna embætti alþjóðaforseta SOS Barnaþorpanna frá upphafi en hann er fyrsti forseti samtakanna sem ekki er austurrískur, en samtökin voru stofnuð í Austurríki árið 1949. Kaul er starfi samtakanna vel kunnugur en faðir hans, J.N. Kaul var einn af stofnendum SOS á Indlandi á sjöunda áratugnum. Þá starfaði Siddartha Kaul fyrir samtökin á Indlandi og Sri Lanka frá árinu 1978.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira