Pokasjóður afhenti Landspítalanum 30 milljóna tæki Samúel Karl Ólason skrifar 28. mars 2014 18:19 Bjarni Finnson, formaður stjórnar Pokasjóðs, prófar nýja tækið. Mynd/Snorri Björnsson
Pokasjóður afhenti Landspítalanum 30 milljón króna lungnarannsóknartæki í dag. Þau leysa af hólmi eldri tæki sem notuð hafa verið á lungnarannsóknarstofu spítalans í 14 ár og eru orðin úrelt. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé önnur gjöf til sjúkrastofnunar og sé það í samræmi við breyttar áherslur Pokasjóðs. Tímabundið hefur verið dregið úr hefðbundnum úthlutunum en fjármunir þess í stað lagðir til tækjakaupa fyrir sjúkrastofnanir landsins. „Tækjagjöfin gerir Landspítalanum kleift að bæta svo um munar þjónustu við lungnasjúklinga og er búnaðurinn sá fullkomnasti á landinu. Nýju tækin gera mögulegt að vinna við mælingar á fleiri starfstöðvum samtímis og auka þannig afkastagetu lungnarannsóknarstofunnar. Með nýju tækjunum má framkvæma allar helstu öndunarmælingar auk þess sem gera má áreynslupróf á þrekhjóli og á göngubretti,“ segir í tilkynningunni. Þá segir einnig að gera megi ráð fyrir að lungnasjúkdómar séu enn talsvert vangreindir hér á landi. „Talið er að 16-18 þúsund manns hafi langvinna lungnateppu en aðeins hluti þeirra hefur fengið greiningu. Öndunarmæling er forsenda fyrir greiningu sjúkdómsins og mikilvæg fyrir snemmgreiningu og stigun sjúkdómsins og vali á lyfjameðferð.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira