Sendifulltrúi Rauða krossins til starfa með sýrlenskum flóttamönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 11. mars 2014 11:09 Um er að ræða samstarfsverkefni Rauða krossins á Íslandi og í Noregi í samvinnu við Rauða krossinn í Líbanon. mynd/aðsend
Guðný Nielsen iðnaðarverkfræðingur er kominn til starfa Líbanon sem sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi. Guðný var fengin til að styðja Rauða krossinn í Líbanon við rekstur færanlegra læknastöðva sem veita sýrlenskum flóttafjölskyldum almenna heilsugæslu. Um er að ræða samstarfsverkefni Rauða krossins á Íslandi og í Noregi í samvinnu við Rauða krossinn í Líbanon. Þrjár hreyfanlegar sjúkrastöðvar eru starfræktar fyrir framlög Rauða krossins á Íslandi og í Noregi. Læknar og hjúkrunarfræðingar veita sýrlenskum flóttamönnum margvíslega læknisþjónustu auk þess sem gefinn er sérstakur gaumur að leiðum til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og ofbeldi gegn börnum sem því miður fylgir oft þeim aðstæðum sem flóttafólk býr við. Guðný hefur undanfarin ár unnið sem verkefnisstjóri hjá slitastjórn Kaupþings. Þetta er fyrsta verkefni Guðnýjar fyrir Rauða krossinn á alþjóðavettvangi, en hún hefur síðustu ár starfað sem sjálfboðaliði Rauða krossins í Reykjavík með konum af erlendum uppruna og við að sinna jaðarhópum í verkefninu Frú Ragnheiði. Guðný hefur einnig starfað sem sjálfboðaliði hjá indverskum hjálparsamtökum sem vinna við að aðstoða götubörn í fátækrahverfum Chandigarh á Norður-Indlandi. Rauði krossinn á Íslandi hefur á undanförnum þremur árum stutt við sýrlenskt flóttafólk með margvíslegum hætti. Auk samstarfsverkefnisins um sjúkrastöðvar, sendi Rauði krossinn í síðasta mánuði gám af hlýjum fatnaði til Líbanons sem dreift verður á næstu vikum til sýrlenskra flóttamanna. Þá hefur Rauði krossins veitt fjárframlög í neyðaraðstoð Alþjóða Rauða krossins sem sér um að dreifa lífsnauðsynlegum hjálpargögnum innan Sýrlands, og viðhalda vatnsveitukerfi fyrir íbúa landsins.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira