Innlent

Tveir karlmenn yfirheyrðir vegna gruns um barnaníð

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Myndin sýnir umfang rannsókarinnar.
Myndin sýnir umfang rannsókarinnar.
Tveir íslenskir karlmenn hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um tengsl við alþjóðlegan barnaníðshring. Lögreglan lagði einnig hald á tölvubúnað vegna málsins. Einn maður til viðbótar er grunaður um aðild að málinu sem á uppruna sinn í Kanada. Rúv sagði frá þessu í kvöldfréttum.

Eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 var hringurinn upprættur í nóvember og kanadíska lögreglan tilkynnti að hann teygði anga sína til Íslands. Rannsóknin hófst árið 2010 og stóð yfir í þrjú ár og telur lögreglan í Toronto sig hafa frelsað um 400 börn undan barnaníðingum á meðan á rannsókninni stóð.

Í rannsókninni voru gerð upptæk 45 terabæti af gögnum og eins og fram kom í haust að yrði gögnunum staflað upp á pappírsformi, yrði stæðan á hæð við sjö og hálfa Hallgrímskirkju. Umfang málsins er því gríðarlegt.

Rannsóknin sneri aðallega að fyrirtæki í Toronto sem seldi DVD diska og aðgang að efni á netinu sem sýndi kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Talið er að myndefninu hafi verið dreift til 94 landa. Fyrirtækið er grunað um að hafa borgað fólki fyrir að taka upp myndbönd með börnum í kynferðislegum athöfnum og selt þau svo áfram á heimasíðu sinni. Lögreglan lagði hald á hundruð þúsunda mynda og myndbanda.

348 manns voru handteknir í aðgerðinni og að því er segir í frétt Rúv voru 100 þeirra í Kanada og 248 í öðrum löndum.

Þar segir jafnframt að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi haft málið til rannsóknar síðan beiðni þess efnis  barst ríkislögreglustjóra frá Interpol í lok nóvember. Rannsóknin leiddi í ljós að þær íslensku IP-tölur sem komu upp í málinu mátti rekja til þriggja íslenskra karlmanna. Tveir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu og einn utan þess.

Búið er að yfirheyra þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu  og var þeim sleppt að lokinni skýrslutöku. Ekki liggur fyrir hvort þeir hafi dreift efninu en þeir eru grunaðir um vörslu þess.


Tengdar fréttir

Rannsökuðu alþjóðlegan barnaníðshring á Íslandi

Lögreglan í Toronto tilkynnti í gær að 348 einstaklingar hefðu verið handteknir í umfangsmikilli rannsókn á alþjóðlegum barnaníðshring. Rannsókin teygði meðal annars anga sína til Íslands.

Gríðarlegt umfang barnaníðshrings: "Kaup voru gerð frá Íslandi“

Umfangsmikill barnaníðshringur sem kanadíska lögreglan tilkynnti í gær að hún hefði upprætt, teygði anga sína til Íslands. Kanadískur rannsóknarlögreglumaður segir lögregluyfirvöld hérlendis taka ákvarðanir um hvort brugðist verði við fyrirliggjandi upplýsingum í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×