Fyrsti diplómat Grænlendinga erlendis verður í Washington Kristján Már Unnarsson skrifar 12. mars 2014 12:30 Frá Nuuk, höfuðstað Grænlands. Mynd/AFP.
Grænlensk ræðismannsskrifstofa í Washington brýtur ekki gegn sjálfsstjórnarsáttmála Grænlendinga við Dani. Utanríkisráðherra Danmerkur, Martin Lidegård, fullvissaði grænlenska þingið um þetta í síðustu viku en innan grænlenskrar þingnefndar hafa verið efasemdir um hvað Grænlendingar gætu gengið langt í að koma sér upp eigin diplómötum í erlendum ríkjum. Samkvæmt sáttmálum Danmerkur um sjálfsstjórn Grænlands og Færeyja eru eyþjóðirnar hluti af danska konungsríkinu og fer ríkisstjórn Danmerkur með utanríkismál. Stjórnin í Kaupmannahöfn ber ábyrgð á stefnumörkun í samskiptum þeirra við erlend ríki og fer einnig með varnar- og öryggismál. Sjálfsstjórnarsáttmálinn gefur Grænlandi þó rétt til að taka tilteknar ákvarðanir í utanríkismálum, eins og koma á fót þjónustuskrifstofum í erlendum ríkjum, segir danski utanríkisráðherrann í svari til grænlensku þingnefndarinnar, að því er fram kemur í grænlenska fréttamiðlinum Arctic Journal. Þingmenn Grænlands höfðu lýst áhyggjum vegna frétta danskra fjölmiðla um að ræðismaður Grænlands í Washington yrði starfsmaður danska utanríkisráðuneytisins. Danski utanríkisráðherrann undirstrikar að svo verði ekki raunin. Innutek Holm, sem verður ræðismaður Grænlands í Washington, mun einbeita sér að viðskipta- og efnahagstengslum. Hann verður fyrsti sendimaður Grænlendinga með stöðu diplómats í erlendu ríki. Grænlendingar áforma einnig að koma á fót ræðismannsskrifstofum í Reykjavík, Moskvu og Peking. Sendimenn Grænlands hjá erlendum ríkjum mega ekki heita sendiherrar né skrifstofurnar sendiráð, þeir verða ræðismenn á ræðismannskrifstofu.
Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Erlent Lögregla leitar manns Innlent Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Innlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Innlent Fleiri fréttir Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Sjá meira