Gríðarlega mikil uppbygging framundan Stefán Árni Pálsson skrifar 12. mars 2014 14:06 Uppbygging í Reykjavík stefnir í að verða meiri en nokkru sinni áður.
Uppbygging í Reykjavík stefnir í að verða meiri en nokkru sinni áður, eftir því sem fram kom í erindum á opnum fundi um stöðu atvinnulífs í borginni, sem haldinn var í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Mikill áhugi var fyrir fundinum og var hvert sæti setið. Áhersla var á að draga fram stöðu mála í atvinnuþróun, ferðamennsku og mannvirkjagerð í Reykjavík. Í kynningum á fundinum kom fram að eftir fimm ára lægð í uppbyggingu er ljóst að komandi misseri munu einkennast af auknum framkvæmdum, einkum í ferðaþjónustu og byggingu íbúðarhúsnæðis. Jón Gnarr, borgarstjóri, bauð gesti velkomna og sagði spennandi tíma framundan í Reykjavík. Uppgangur ferðaþjónustu væri ótrúlegur og sem dæmi um áhuga erlendra miðla á Reykjavík nefndi hann að í sinni borgarstjóratíð hefði hann rætt við yfir 500 erlenda fjölmiðla.Ferðaþjónustan stærsta útflutningsgreinin Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar og ferðamálasviðs, sýndi í kynningu sinni vöxt ferðaþjónustu í Reykjavík, en ferðaþjónustan er orðin stærsta útflutningsgrein Íslands. Hún dró fram áherslur í ferðamálastefnu Reykjavíkur til ársins 2020, sem eru menningarborg, heilsuborg, ráðstefnuborg og vetrarborg. Svanhildur sagði frá sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins en þar er unnið með vörumerkið „Reykjavík“. Í þeirri vinnu hafa verið dregið fram lykilorð úr rannsóknum meðal gesta borgarinnar og þeirra sem hafa áhuga á Íslandi, en þau lykilorð sem tengd eru við borgina eru vinaleg, friðsæl, menningarleg, litrík, nútímaleg, hrein og smá. Nær allir gestir sem til Reykjavíkur koma eða 98% þeirra ætla að mæla með borginni við vini.Skapandi greinar og uppbyggingarsvæði Óli Örn Eiríksson, deildarstjóri atvinnuþróunar, sagði frá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar sem heldur utan um margvísleg þróunarverkefni innan borgarkerfisins í samræmi við atvinnustefnu borgarinnar. Hlúð er að Reykjavík sem ákjósanlegum stað til að stofna og byggja upp alþjóðleg þekkingarfyrirtæki. Í samvinnu við háskólana og Landsspítalann sé unnið að uppbyggingu þekkingarsvæðis. Þá sagði hann frá því að Reykjavík hefði í könnun fDi magazine um framtíðarborgir lent í 2. sæti á undan Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Árangur margvíslegra samstarfsverkefna er að koma í ljós og nefndi Óli Örn Fab Lab í Breiðholti og frumkvöðlasetur skapandi greina sem opnar á Hlemmi í næstu viku og kyndir þar undir einum heitasta reit borgarinnar.Viðsnúningur í byggingu íbúða „Reykjavík dregur vagninn í auknum hagvexti í landinu,“ sagði Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og hann sýndi í sinni kynningu gífurlega aukningu á byggingu íbúðarhúsnæðis. Á árabilinu 2007 – 2012 hefði þurft að byggja 2.700 fleiri íbúðir en raun var og segir Dagur nauðsynlegt að vinna upp þetta gap til að mæta þörf fyrir íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Frá þessu alkuli eftir hrun var árið 2013 byrjað að byggja 614 íbúðir og nú í ár gera spár ráð fyrir að framkvæmdir við 950 íbúðir hefjist. Aukningin árið 2015 gæti svo orðið mun meiri. Dagur gerði óskir ungs fólks um búsetu að umræðuefni, en það vill einkum búa miðsvæðis í leiguhúsnæði og þær óskir ríma mjög vel við nýsamþykkt aðalskipulag. Hann fór síðan í kynningarglærum sínum yfir helstu uppbyggingarreitina og ljóst er að þar er ákaflega margt í pípunum. Í samantekt Dags er einnig gerð grein fyrir uppbyggingu hótel og gististaða í Reykjavík, en bygging nær 1.200 gistiherberja er í gangi. Hann sagði að borgaryfirvöld vildu greiða þessari uppbyggingu leið og það tæki þrýsting af því þá yrði síður almennt íbúðarhúsnæði notað sem gistirými. Dagur sagði þó nauðsynlegt að staldra við því ekki gæti þessi þróun haldið áfram og komið væri að þolmörkum miðborgarinnar. Stækka þyrfti svæðið og nefndi hann nokkra möguleika í því sambandi.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira