Evrópustefna ríkisstjórnarinnar er yfirklór Heimir Már Pétursson skrifar 12. mars 2014 14:51 Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert nýtt í evrópustefnu ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í gær. Hún sé yfirklór eftir að ríkisstjórninn hafi farið um eins og flóðhestur í postulínsbúð. vísir/daníel
Fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert nýtt í evrópustefnu sem kynnt var á ríkisstjórnarfundi í gær um eflingu EES samstarfsins. Hún sé nokkurs konar yfirbót af hálfu ríkisstjórnarinnar eftir að hafa farið um eins og flóðhestur í postulínsbúð í evrópumálum. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra kynnti nýjar evrópuáherslur sínar á ríkisstjórnarfundi í gær. Þær felast aðallega í því að efla viðveru íslenskra erindreka í Brussel, samstarfið inna EFTA og tvíhliða samninga við einstök evrópuríki. „Í fljótu bragði er nánast ekkert nýtt sem hönd á festir í þessari stefnu. Þetta er samtíningur af verkferlum sem þegar voru fyrir hendi,“ segir Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra. Ríkisstjónarflokkarnir hafi sjálfir fellt tillögu núverandi utanríkisráðherra um aukin fjárframlög til sendiráðsins í Brussel við fjárlagagerðina fyrir áramót. „Og svo kannski það sem er broslegast af öllu, að Gunnar Bragi buktar sig fyrir valdinu í Brussel og lofar því að innleiða tilskipanir frá höfuðstöðvunum hraðar en áður og aðlaga Ísland þannig betur að Evrópusambandinu en fyrr,“ segir Össur. En í dag er nokkur slaki á innleiðingu tilskipanna Evrópusambandsins og hafa risið málaferli út af þvi fyrir EFTA-dómstólnum. „Og á köflum minnir þetta mig á ítalskan farsa. Þetta er eiginlega of grátbroslegt til þess að hægt sé að brosa af því,“ segir utanríkisráðherrann fyrrverandi. Össur segir að því hafi verið sinnt eins og hægt er að hafa áhrif á gerðir Evrópusambandsins áður en þær verða að tilskipunum. Íslendingar hafi notið við það verulega góðs samstarfs við Norðmenn sem hafa sterka viðveru í Brussel. Þá hafi samstarfið við hin EFTA ríkin verið gott. Það sé rislág evrópustefna að styrkja samstarf við vinaþjóðir sem þegar sé mjög gott. Skýrsla Hagfræðistofnunar um evrópumál og tillaga utanríkisráðherra um að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka eru enn til meðferðar í þinginu. Nú liggur síðan þessi nýja stefna fyrir sem enn hefur ekki verið kynnt þinginu, þótt utanríkisráðherra hafi minnst á hana í andsvari á Alþingi í gær. „Það er náttúrlega ekki tilviljun. Þetta er svona yfirklór eftir að þeir hafa hagað sér eins og flóðhestur í postulínsbúð, brotið og bramlað gagnvart sambandi okkar við Evrópu,“ segir Össur Skarphéðinsson.Umræður um afturköllun aðildarumsóknar að Evrópusambandinu halda áfram á Alþingi klukkan þrjú í dag.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Sjá meira