Gjaldtakan á Geysissvæðinu tekur gildi á næstu dögum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. mars 2014 18:30 Gjaldtakan muni því taka gildi á næstu dögum og gjaldið verði 600 krónur. "Við höfum talið það mjög hóflegt, um það bil kaffibolli,“ segir Garðar. VÍSIR/GVA
Sýslumaðurinn á Selfossi hafnaði lögbannsbeiðni ríkisins vegna fyrirhugaðar gjaldtöku á Geysissvæðinu. „Við höldum áfram með okkar áform. Stjórnin mun hittast í kvöld eða í fyrramálið og þá ákveðum við með hvaða hætti við höldum þessu starfi okkar áfram,“ segir Garðar Eiríksson, talsmaður Geysisfélagsins. Gjaldtakan muni því taka gildi á næstu dögum og gjaldið verði 600 krónur. „Við höfum talið það mjög hóflegt, um það bil kaffibolli,“ segir Garðar. Um boð fjármálaráðuneytisins um að setja fjármuni í framkvæmdir á svæðinu svarar Garðar því til að 30 milljónir til eða frá breyti ekki miklu en sé vissulega viðleitni. „Það er ekki horft til þess að leysa þetta mál með varanlegum hætti og það er það sem við höfum verið að leggja áherslu á síðastliðin þrjú ár. Við viljum koma þessu fyrir með varanlegum hætti, þessu svæði og því starfi sem þarf að eiga sér stað þar.“ Miðað við niðurstöður úr hugmyndasamkeppninni vegna framkvæmda á svæðinu segist Garðar ekki geta ímyndað sér að kostnaðurinn verði mikið minni en hálfur milljarður. „Við berum ábyrgð gagnvart ferðaþjónustunni. Hagsmunir hennar og landeigenda eru sameiginlegir; að þetta svæði sé til sóma og tilbúið að taka á móti síauknum ferðamannafjölda.“
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira