„Verstur er mannorðsmissirinn" Birta Björnsdóttir skrifar 14. mars 2014 19:06
Mál gegn tveimur starfsmönnum leikskólans 101 um meint harðræði gegn börnum hefur verið látið niður falla þar sem það sem fram kom við rannsókn málsins þótti ekki nægjanlegt eða líklegt til sakfellingar. Meint brot leikskólastjórans á skyldum gagnvart hinu opinbera hafa verið send til ríkissaksóknara. Hulda Linda Stefánsdóttir er eigandi leikskólans 101, hún segir niðurstöðuna ekki koma sér á óvart. Þann 20. ágúst í fyrra fengu Hulda og leikskólastjórinn boð um að koma á fund Barnaverndarnefndar, þar var þeim greint frá meintu harðræði sem tveir starfsmenn skólans voru grunaðir um að hafa beitt. Það var í fyrsta sinn sem Hulda heyrði af málinu. „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu," segir Hulda. „Starfsmennirnir sem lögðu fram ásakanirnar höfðu verið ráðnir tímabundið til starfa á leikskólanum. Þeir höfðu aldrei leitað til mín með þessar ásakanir eða látið vita að eitthvað væri í gangi sem ekki væri í lagi.“ Hulda segir barnaverndaryfirvöld hafa farið offari í málinu „Strax sama kvöld og málið kemur fyrst upp hefur Barnaverndarnefnd samband við alla foreldra skólans og tilkynnir þeim að meint harðræði hafi átt sér stað í skólanum og að af því séu til myndbönd. Þau nafngreina líka starfsmennina sem um ræðir sem mér finnst vera ámælisvert. Ég var alveg hörð á því að þetta mál færi í rannsókn, annað hefði ekki komið til greina. Mér fannst svo vitlaust staðið að þessarri rannsókn,“ segir Hulda. „Barnavernd leggur svo til að foreldrar mæti ekki með börnin sín í leikskólann, og að sjálfsögðu gera foreldrar það ekki. Ég skil það vel. En þar með var traustið farið og enginn grundvöllur fyrir starfseminni áfram.“Traustið var farið„Ég gerði tilkall til skóla- og frístundasviðs og barnaverndar um að þau kæmu inn í málið með mér og myndu hjálpa mér að byggja upp traust. En því var hafnað,“ segir Hulda. Myndbönd sem starfsmennirnir lögðu fram hafa verið í umræðunni. „Þetta eru myndbönd sem tekin eru upp á síma og klippt saman. Á einu myndbandanna sést starfsmaður skakka leikinn þar sem tvö börn eru að rífast, hún tekur í öxl barnsins og slær á bossann á því. Þetta er auðvitað nokkuð sem ég legg engan vegin blessun mína yfir og er á engan hátt í takt við starfsmannastefnu leikskólans. Þetta atvik, sem ég var aldrei látin vita af, er nokkuð sem tekið hefði verið á innan leikskólans en er að mínu mati ekki tilefni til þeirra málaferla sem í kjölfari komu,“ segir Hulda. Hún segir síðastliðna mánuði hafa verið sér og starfsfólki skólans mjög erfiða. „Verst er að missa mannorð sitt. Þetta var svo ljótt, allt í kringum þetta. Dómstóll götunnar var svo óvæginn. Við vorum að starfa með lítil börn, þetta er það dýrmætasta sem við eigum. Að heyra ljóta hluti sem eru ekki sannir, það er bara alveg skelfilegt.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira