Skora á þingmenn að beita sér gegn mannréttindabrotum gegn sýrlenskum börnum Stefán Árni Pálsson skrifar 15. mars 2014 09:48 Í dag eru þrjú ár frá upphafi átakanna og sýrlensk börn hafa þolað hryllilegar þjáningar. visir/ap
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa sent þingmönnum áskorun um að beita sér af meiri ákveðni og festu til að koma í veg fyrir frekari mannréttindabrot gegn sýrlenskum börnum og fjölskyldum þeirra.Áskorunin er eftirfarandi: Barnaheill – Save the Children á Íslandi skora á íslensk stjórnvöld að beita sér tafarlaust fyrir því að mannréttindabrot gegn börnum í Sýrlandi verði stöðvuð. Gróflega er brotið á rétti barna sem þau eiga samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í 4. grein sáttmálans er kveðið á um að aðildarríki hjálpist að við að tryggja börnum heims þennan rétt sinn. Með því að undirrita Barnasáttmálann hafa íslensk stjórnvöld því skuldbundið sig til að stuðla að því að mannréttindi barna séu virt. Í dag eru þrjú ár frá upphafi átakanna og sýrlensk börn hafa þolað hryllilegar þjáningar. Meira en 10 þúsund börn hafa týnt lífi í grimmilegum átökum og rúmlega milljón börn hafa neyðst til að flýja heimaland sitt. Fyrir börnin sem enn búa í Sýrlandi, eru það ekki bara byssukúlur og sprengjuregn sem drepa og lama, heldur veldur skortur á grunnheilbrigðisþjónustu sjúkdómum og jafnvel dauða. Sum börn þekkja aðeins líf í stríði, búsetu í flóttamannabúðum, matarskort og ástvinamissi. Ekkert barn á að þurfa að búa við slíkar aðstæður. Eftir þriggja ára stríðsrekstur er þörfin fyrir mannúðaraðstoð gífurleg og enn eru Barnaheill - Save the Children með í forgangi að útvega lífsnauðsynlega þjónustu fyrir sýrlensk börn og fjölskyldur þeirra. Nú eru 60% spítala landsins skemmdir eða rústir einar. Næstum helmingur sýrlenskra lækna hefur flúið land. Í Aleppo, borg, sem ætti að búa yfir 2.500 læknum, eru 36 starfandi læknar. Starfsfólk Barnaheilla – Save the Children lýsir því að nýburar í hitakössum deyji vegna rafmagnsleysis, blóðbirgðir séu á þrotum og mikill skortur sé á helstu lyfjum. Aukinn fjöldi barna þjáist og deyr úr sjúkdómum sem áður var auðvelt að meðhöndla eða koma í veg fyrir. Í skýrslu Barnaheilla – Save the Children, A devastating toll, sem kom út á mánudag kemur berlega í ljós hversu innviðir sýrlensks samfélags eru laskaðir. Þetta hefur gífurleg áhrif á líf barna, heilsu þeirra og afkomu. Alþjóðasamfélagið hefur brugðist sýrlenskum börnum og hvetja Barnaheill íslensk stjórnvöld til að beita sér af meiri ákveðni og festu til að koma í veg fyrir frekari mannréttindabrot, þjáningar og dauða sýrlenskra barna og fjölskyldna þeirra.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira