Innlent

Heimilin bera verulegan kostnað af vatnstjóni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Vatnstjón á heimilum og í fyrirtækjum nam á þriðja milljarði króna árið 2013 og og varð langmestur hluti tjónsins á heimilum eða 84 prósent. Tryggingafélögin bæta tjónið að miklu leiti en ljóst er að heimilin bera verulegan kostnað af vatnstjóni. Annars vegar greiða þau hundruð milljóna króna í eigin áhættu en hins vegar er mjög algengt að vatnstjón reynist ekki bótaskylt. Tilkynnt var um vatnstjón 18 sinnum að meðaltali á dag, þar af voru að meðaltali fjögur tilvik ekki bótaskyld.

Þetta kemur fram í tölum tryggingafélaganna sem teknar voru saman af óháðum aðila fyrir samstarfshóp um varnir gegn vatnstjóni. Til samanburðar má nefna að brunatjón nam 1.239 milljónum króna í fyrra.

Bætt vatnstjón á heimilum nam nærri 1.900 milljónum króna en þar af er eigin áhætta tryggingataka um 300 milljónir . Vatnstjón í fyrirtækjum nam rúmlega 366 milljónum króna. Alls var tilkynnt um 6.700 tilvik og bættu tryggingafélögin tjónið í 5.200 tilvikum en í 1.500 tilvikum reyndist tjónið ekki bótaskylt.

Tryggingafélögin greiddu að meðaltali rúmlega 300 þúsund krónur fyrir hvert tjón. Sé meðaltalið það sama þar sem tjón var ekki bótaskylt má ætla að heimilin hafi tekið á sig um 455 milljónir í óbætt tjón. Að viðbættri eigin áhættu eru bein fjárútlát heimilanna vegna vatnsleka þá um 753 milljónir króna. Þá er ótalið rask, óþægindi og jafnvel heilsutjón sem getur hlotist af vatnsleka, raka og myglu.

Fjöldi tilvika dreifist nokkuð jafnt á mánuði ársins en hann er þó mestur yfir vetrarmánuðina. Flest tilvik urðu í desember eða 615 talsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×