Innlent

Tveir fluttir á slysadeild

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Vilhelm
Árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í Reykjavík um eitt leytið í dag.

Jeppi og fólksbíll skullu saman og kom lögregla á vettvang ásamt sjúkrabifreiðum. Tveir voru fluttir á slysadeild.

Bílarnir eru illa farnir eins og sést á meðfylgjandi myndum af vettvangi.

Vísir/Vilhelm
Vísir/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×