Innlent

Norskir í loðnu á Skjálfandaflóa

Gissur Sigurðsson skrifar
Loðnuskip á veiðum.
Loðnuskip á veiðum. visir/hb grandi
Tvö norsk loðnuskip, sem ekki gáfust upp eins og hin 30 skipin og sigldu tóm heim, fundu og veiddu loðnu norður á Skjálfandaflóa í gær.

Annað skipið landaði 850 tonnum á Norðfirði í gær og hitt kom til Þórshafnar í nótt með 1250 tonn, en eitt skip er enn á miðunum. Veiðiheimildir skipanna hér við land renna út eftir rúmlega hálfan annan sólarhring og því óljóst hvort þau freista aftur gæfunnar. Íslensku skipin eru hinsvegar að veiðum út af Garðskaga og gengur vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×