Sport

Enn einn sigur Kanada í krullu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Karlalið Kanada í krullu fylgdi kvennaliðinu eftir með því að vinna til gullverðlauna á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í dag.

Kanada vann öruggan sigur á liði Breta í úrslitunum í dag, 9-3 en kvennaliðið vann sín gullverðlaun í gær. Karlarnir voru komnir í 6-1 forystu eftir fjórar lotur og sigurinn nánast tryggður.

Um metjöfnun er að ræða en þetta er stærsti sigur liðs í úrslitaleik á Ólympíuleikum síðan Kanada vann Finnland, 10-4, á leikunum í Tórínó árið 2006.

Fyrr í dag vann Svíþjóð sigur á Kína, 6-4, í bronsleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×