Margt um að vera hjá lögreglunni á Selfossi Samúel Karl Ólason skrifar 24. febrúar 2014 12:06 Vísir/Stefán
Verkefni lögreglunnar á Selfossi voru af mörgum toga í síðustu viku, en tilkynnt var um fjögur innbrot í sumarbústaði í umdæminu. Tvö þeirra í Miðengislandi í Grímsnesi, eitt í landi Efri Brúnavalla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og eitt í landi Gerðakots í Ölfusi. Flatskjáum var stolið úr þremur bústöðum og gasofni úr einum. Þá kom upp eldur í bifreið í Þrengslum. Ökumaður bifreiðarinnar varð var við reyk stíga upp frá gírstöng og skömmu síðar hættu allir mælar að virka. „Hann stöðvaði bifreiðina og skömmu síðar blossaði upp eldur í mælaborði. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu fór á staðinn og slökkti eldinn. Bifreiðin má heita ónýt,“ segir í dagbók lögreglunnar. Maður hlaut opið beinbrot er hann datt við sumarbústað í Grímsnesi um helgina og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Annar maður rann til á svelli við Þjónustumiðstöðina á Þingvöllum og slasaðist. Sá var einnig fluttur á slysadeild en ekki er vitað frekar um meiðsli hans. Tvær bifreiðir lentu utan vegar á vikunni. Önnur hafnaði á hliðinni utan vegar á Hellisheiði og önnur valt við kirkjugarðinn á Stokkseyri aðfararnótt sunnudags. Bifreiðin hafnaði á ljósastór og steyptu grindverki, en ökumaður slapp ómeiddur og er grunaður um ölvun við akstur. Einnig voru tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur í vikunni og að auki tveir fyrir akstur undir áhrifum áfengis.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira