Sigmundur með frönskum sló í gegn Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. febrúar 2014 14:55 Sigmundur sló í gegn en Bjarni fiskborgari floppaði. vísir/gva/vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mættu ekki í hamborgara til veitingamannsins Magnúsar Inga Magnússonar í hádeginu, en þeim var formlega boðið að mæta á veitingastaðinn Texasborgara og þiggja borgara nefnda í höfuðið á þeim sjálfum. Í samtali við Fólk, kynningarblað sem fylgir Fréttablaðinu í dag, segist Magnús vera orðinn þreyttur á að bíða eftir skuldaleiðréttingunni frá Sigmundi og Bjarna og því hafi hann ákveðið að byrja að bjóða upp á litla og ódýra borgara fyrir fólk í skuldaánauð. Magnús vildi bjóða þeim félögum upp á Sigmund og Bjarna með frönskum kartöflum og steikja fyrir þá fyrstu borgarana af hvorri tegund. Hvorugur þeirra mætti en Sigmundur lét Magnús þó vita að hann kæmist ekki. „Já hann sendi mér þau skilaboð að vegna anna kæmist hann ekki en hinn lét ekki heyra í sér,“ segir Magnús í samtali við Vísi og bætir því við að boðið standi enn, þó að nú hafi almenningur fengið að bragða á borgurunum. „Við byrjuðum í hádeginu og það var góð umferð í þetta. Sigmundur var sérstaklega vinsæll enda er hann hamborgari. Bjarni var ekki jafn vinsæll enda er það nú reynsla mín af fiskborgurum. Þeir eru ekki jafn vinsælir.“ Magnús segist sjálfur hafa kosið Sigmund vegna loforðsins um skuldaleiðréttingu en fólkið sé orðið þreytt. „Ég segi bara eins og Ingvi Hrafn, er hann snákasölumaður eða Houdini?“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira