Sakar lögregluna um upplýsingaleka Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. febrúar 2014 21:09 Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður og Stefán Logi Sívarsson
Hæstaréttarlögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson var gestafyrirlesari í kennslustund í refsirétti við lagadeild Háskóla Íslands í gær. Þegar talið barst að upplýsingaflæði til verjenda í sakamálum vandaði Vilhjálmur lögregluembættinu ekki kveðjurnar. Sakaði lögmaðurinn lögregluna um að leka mikilvægum upplýsingum til fjölmiðla sem hann taldi oft vita meira en sjálfir aðilar málsins. Í samtali við fréttamann Vísis gekkst Vihjálmur við þessum ásökunum og bætti við: „Lögreglan lekur öllum þeim upplýsingum sem henni hentar, þegar henni hentar." Máli sínu til stuðnings reifaði Vilhjálmur sögu af því þegar honum var sagt að mæta í fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þegar þangað var komið sást hvorki tangur né tetur af skjólstæðingi hans enda var svo komið að fyrirtakan var í Héraðsdómi Reykjaness, ekki Reykjavíkur. Þegar Vilhjálmur var þangað kominn voru fjölmiðlamenn farnir að safnast saman. „Stefán Logi var allur kramúbleraður og handleggsbrotinn og lögreglan hefur sent fréttamenn á staðinn til þess að ná myndum af honum í þessu ástandi til að láta hann líta illa út,“ sagði Vilhjálmur. Einnig sakaði Vilhjálmur lögregluna um að leyna hann upplýsingum um hvaða fíkniefni voru í fórum skjólstæðings hans. „Upplýsingarnar fékk ég svo í hádegisfréttum á Bylgjunni þar sem allt var látið flakka," sagði Vilhjálmur íbygginn að lokum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vilhjálmur gagnrýnir upplýsingaleka lögreglunar en Vísir greindi frá máli sem hann hyggst höfða gagnvart aðstandendum vefsíðu sem birtu rannsóknargögn í máli hans.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira