Lífið

Shia LaBeouf stendur fyrir furðulegum gjörningi í Kaliforníu

Shia LaBeouf
Shia LaBeouf
Shia LaBeouf stendur nú fyrir gjörningi í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem heitir #iamsorry, sem útleggst á íslensku #égbiðstafsökunar.

Fyrir hvað hann er að biðjast afsökunar er óljóst, en fólk virðist áhugasamt um uppátækið því fjöldi fólks biður í biðröð fyrir utan húsnæðið þar sem Shia heldur sig og sumir þeirra biðu svo klukkutímum skipti.

Furðuleg hegðun LaBeouf hefur vakið athygli að undanförnu, en þetta er sennilega furðulegasta uppátæki LaBeouf hingað til.

Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×