Sport

Skákaði tveimur Kínverjum og fékk gull | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hvíta-Rússland vann sinn annan sigur í skíðafimi á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí þegar Anton Kushnir tryggði sér gull í greininni.

Áður hafði Alla Tsuper fengið gull í kvennaflokki þrátt fyrir að hafa verið síðust af þeim fjórum sem komust í fjögurra manna úrslitin.

Kushnir náði þriðja besta stökkinu í undanúrslitum en þeir Zongyang Jia og Guangpu Qi frá Kína voru með tvær bestu einkunnirnar fyrir úrslitaumferðina. Ástralinn David Morris var svo síðasti maðurinn inn í úrslitin.

Kushnir náði ótrúlegu stökki í úrslitunum sem skilaði honum 134,50 stigum. Þar með bætti hann sig um tæp 20 stig frá stökki sínu í undanúrslitunum og ljóst að Kínverjarnir tveir þyrftu að ná sínu allra besta fram til að komast fram úr Hvít-Rússanum.

Báðir reyndu erfið stökk sem gengu ekki fullkomnlega upp. Hvorugur fékk meira en 100 stig og féllu þar með fyrir neðan Morris sem fékk 110 stig í úrslitunum. Svo fór að Jia fékk brons fyrir stökk upp á rúm 95 stig.

Þetta eru önnur gullverðlaun Hvít-Rússa í dag en Darya Domracheva vann sigur í 12,5 km skíðaskotfimi nú síðdegis. Það voru hennar þriðju gullverðlaun á leikunum í Sotsjí.


Tengdar fréttir

Bein útsending frá ÓL 2014 | Dagur 10

Vísir er með beina útsendingu frá keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi en tíundi keppnisdagur leikanna er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×