Sport

Sögulegur sigur Bandaríkjanna | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Meryl Davis og Charlie White unnu í dag fyrstu gullverðlaun Bandaríkjanna í ísdansi para á Vetraraólympíuleikum frá upphafi.

White og Davis fengu samanlagt 195,52 stig, fimm stigum meira en Tessa Virtue og Scott Moir frá Kanada sem fengu silfur.

Davis og White voru frábær, bæði í skylduæfingunum í gær og frjálsum æfingum í dag. Í bæði skiptin fengu þau metfjölda stiga fyrir frammistöðu sína.

Elena Bobrova og Nikita Katsalapov frá Rússlandi fengu brons við mikinn fögnuð heimamanna í Sotsjí.


Tengdar fréttir

Bein útsending frá ÓL 2014 | Dagur 10

Vísir er með beina útsendingu frá keppni á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi en tíundi keppnisdagur leikanna er í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×