Erlent

Ótrúlegar myndir frá mótmælunum í Úkraínu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Um 600 þjóðernissinnar báru kyndla í borginni Lviv þann 29. janúar.
Um 600 þjóðernissinnar báru kyndla í borginni Lviv þann 29. janúar. vísir/afp
Mótmælin í Úkraínu héldu áfram í dag og forseti landsins, Viktor Janúkóvitsj, er lagstur í rúmið vegna kvefs. Óvíst er hvenær hann tekur til starfa að nýju. Mótmælendur krefjast þess að hann segi af sér.

Sérfræðingar segja átökin ramba á barmi borgarastyrjaldar en mótmælin hafa staðið yfir síðan í lok nóvember.

Mykola Azarov, forsætisráðherra Úkraínu, sagði af sér embætti í fyrradag, en með afsögn sinni vildi hann hjálpa til við að koma á friðsamlegum enda deilunnar. Þá hefur þing Úkraínu fellt úr gildi lög sem takmarka rétt fólks til mótmæla.

Þrír mótmælendur hafa látist í átökum við lögreglu eftir að hin umdeildu lög voru sett á fyrr í mánuðinum.

Á degi hverjum berast magnaðar myndir frá mótmælunum og sjá má nokkrar þeirra hér fyrir neðan.

Óeirðarlögregla í Kænugarði 28. janúar.vísir/afp
Lögreglumenn standa á móti vegatálma sem mótmælendurnir settu upp 28. janúar.vísir/afp
Mótmælandi fær sér smók við bálköst í miðborg Kænugarðs 30. janúar.vísir/afp
Kona stendur við vegatálma í miðborg Kænugarðs 30. janúar.vísir/afp
Konur með styttu af Maríu mey biðja óeirðarlögreglu að hætta átökum sínum við mótmælendur.vísir/afp
Hlúð að sárum þingmanns eftir slagsmál í þinginu 16. janúar.vísir/afp
Fyrrverandi hnefaleikakappinn og einn helsti leiðtogi mótmælendanna, Vitali Klitschko, 30. janúar.vísir/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×