Enski boltinn

Björn boðinn í skiptum fyrir leikmann Coventry

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björn Bergmann í leik með Wolves.
Björn Bergmann í leik með Wolves. Vísir/Getty
Staðarblaðið Coventry Telegraph fullyrðir í dag að enska C-deildarliðið Wolves vilji bjóða Coventry Björn Bergmann Sigurðarson í skiptum fyrir leikmann liðsins.

Wolves hefur verið á höttunum eftir miðjumanninum Leon Clarke en Coventry hafnaði tilboði liðsins fyrir viku síðan.

Forráðamenn Úlfanna eru nú sagðir reiðubúnir að leggja fram nýtt tilboð - Björn Bergmann og ákveðna upphæð í skiptum fyrir Clarke.

Það er þó tekið fram í fréttinni að það sé óvíst hvort að Björn Bergmann sjálfur, sem hefur lítið fengið að spila hjá Wolves, sé viljugur að fara til Coventry.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×