Ákváðu að skella í gang söfnun Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. janúar 2014 21:27 Dóttirin sem er 14 ára vann hetjudáð þegar hún bjargaði móður sinni út úr brennandi íbúðinni.
Tveir félagar, þeir Árni Geir Bergsson og Heimir Arnfinnsson, hafa sett af stað söfnun fyrir mæðgurnar, þær Herdísi Kristjönu Hervinsdóttur og Margréti Heiðrúnu Harðadóttur, sem lentu í bruna á heimili sínu í Írabakka í Breiðholti í byrjun desember. „Ég var að skoða fréttir og ákvað að skella í gang söfnun, þetta er svona góðverk ársins 2014,“ segir Árni. Hann þekkir þær mæðgur ekki neitt en hafði upp á vinkonu móðurinnar og gerir þetta í samstarfi við hana. Dóttirin sem er 14 ára vann hetjudáð þegar hún bjargaði móður sinni út úr brennandi íbúðinni. Móðirin var haldið sofandi eftir að hafa hlotið reykeitrun og alvarleg brunasár. Stúlkan var flutt á sjúkrahús með reykeitrun.Heimir Arnfinnsson er annar þeirra sem stendur að söfnuninni.Í samtali við DV sagði vinkona Herdísar að þær mæðgur væru að jafna sig en væru undir eftirliti lækna vegna reykeitrunarinnar. Í samtali við stöð 2 í desember sagði nágranni þeirra Herdísar og Margrétar að hann hefði vaknað upp um nóttina við að þær voru að kalla á hvor aðra. Margrét hafi á undraverðan hátt náð að draga móður sína í frá eldinum og hann sagði að það væri kraftaverki líkast enda hafi verið mikill eldur í íbúðinni. Mæðgurnar missti allt sitt í brunanum. „Þetta er hugmynd sem ég ákvað að framkvæma og við ætlum að hafa samband við nokkur fyrirtæki strax á morgun og skora á þau að leggja söfnuninni lið,“ segir Árni. „Ég ætla að byrja á Alcoa fjarðarál þar sem ég starfa.“ Þeir Heimir hafa stundað markaðssetningu á netinu um skeið. Þeir ætla að nýta sér þá kunnáttu sem þeir hafa öðlast til þess að hjálpa mæðgunum. „Við gefum vinnuna og því rennur allt sem safnast óskert til þeirra,“ segir Árni.Hér er Facebook-síðan sem Árni stofnaði í tilefni söfnunarinnar. Vefsíða söfnunarinnar er hér og þar má finna reikningsnúmer.Árni ásamt fjölskyldu sinni. "Þetta var bara hugmynd sem ég ákvað að framkvæma," segir hann um söfnunina.
Tengdar fréttir Einn í lífshættu eftir eldsvoða í Breiðholti Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Breiðholti undir morgun og eru tveir þeirra komnir á gjörgæsludeild. Annar þeirra er í lífshættu vegna brunasára og reykeitrunar, en hinn þarf að dvelja þar vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 06:44 Konunni haldið sofandi og í öndunarvél Konan, sem brann illa í brunanum í Írabakka í Breiðaholtinu í morgun, er haldið sofandi og í öndunarvél á Landsspítalanum í Fossvogi. 9. desember 2013 14:08 Konan á batavegi eftir brunann í Írabakka Kona sem hlaut brunasár og reykeitrun eftir brunann í Írabakka aðfaranótt mánudags er á batavegi. 12. desember 2013 13:51 Liggur enn þungt haldin eftir brunann í Írabakka Konan sem hlaut alvarleg brunasár og reykeitrun í brunanum við Írabakka í gær liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítlans. Henni er haldið í öndunarvél. 10. desember 2013 10:10 Mæðgur vel svartar af reyk Íbúð í fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti er gjörónýt eftir bruna í nótt. Fjórir á slysadeild vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 08:21 Stúlkan dró móður sína úr logandi íbúðinni Íbúi við Írabakka klifraði yfir svalir og reyndi að bjarga fjórtán ára stúlku úr brennandi íbúð. "Ég leitaði að stúlkunni en komst ekki langt þar sem íbúðin stóð í ljósum logum,“ segir Ólafur Snævar. Stúlkan dró særða móður sína út. 9. desember 2013 11:11 14 ára telpa vann hetjudáð í Írabakka 14 ára telpa vann hetjudáð þegar hún bjargaði móður sinni út úr brennandi íbúð í Breiðholti í nótt. Kraftaverk segir nágranni. 9. desember 2013 20:00 Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira
Einn í lífshættu eftir eldsvoða í Breiðholti Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi í Breiðholti undir morgun og eru tveir þeirra komnir á gjörgæsludeild. Annar þeirra er í lífshættu vegna brunasára og reykeitrunar, en hinn þarf að dvelja þar vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 06:44
Konunni haldið sofandi og í öndunarvél Konan, sem brann illa í brunanum í Írabakka í Breiðaholtinu í morgun, er haldið sofandi og í öndunarvél á Landsspítalanum í Fossvogi. 9. desember 2013 14:08
Konan á batavegi eftir brunann í Írabakka Kona sem hlaut brunasár og reykeitrun eftir brunann í Írabakka aðfaranótt mánudags er á batavegi. 12. desember 2013 13:51
Liggur enn þungt haldin eftir brunann í Írabakka Konan sem hlaut alvarleg brunasár og reykeitrun í brunanum við Írabakka í gær liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítlans. Henni er haldið í öndunarvél. 10. desember 2013 10:10
Mæðgur vel svartar af reyk Íbúð í fjölbýlishúsi við Írabakka í Breiðholti er gjörónýt eftir bruna í nótt. Fjórir á slysadeild vegna reykeitrunar. 9. desember 2013 08:21
Stúlkan dró móður sína úr logandi íbúðinni Íbúi við Írabakka klifraði yfir svalir og reyndi að bjarga fjórtán ára stúlku úr brennandi íbúð. "Ég leitaði að stúlkunni en komst ekki langt þar sem íbúðin stóð í ljósum logum,“ segir Ólafur Snævar. Stúlkan dró særða móður sína út. 9. desember 2013 11:11
14 ára telpa vann hetjudáð í Írabakka 14 ára telpa vann hetjudáð þegar hún bjargaði móður sinni út úr brennandi íbúð í Breiðholti í nótt. Kraftaverk segir nágranni. 9. desember 2013 20:00