Árni Freyr: Ég man ekkert hvað gerðist Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. júní 2014 12:30 Árni Freyr Ásgeirsson fluttur á brott í sjúkrabíl á Laugardalsvellinum í gær. Vísir/Daníel „
Ég er bara svona allt í lagi - ekki meira en það,“ segir Árni Freyr Ásgeirsson, markvörður Keflavíkur, í samtali við Vísi en hann var borinn af velli í leik Fram og Keflavíkur í Pepsi-deildinni í gærkvöldi. Árni lenti í samstuði við samherja sinn Unnar Má Unnarsson og steinrotaðist. Hann var rakleiðis borinn af velli og inn í hús áður en sjúkrabíll flutti hann á spítala. „Ég man ekkert hvað gerðist. Ég rankaði bara við mér á börum inn í húsi. Það er það fyrsta sem ég man eftir mér,“ segir Árni en Unnar Már var ekki lengi að hringja í félaga sinn í dag og athuga stöðuna. „Hann var eitthvað stressaður yfir þessu og hringdi í mig. Ég man ekkert hvað gerðist en eins og hann lýsir þessu þá var hann að elta einhvern þarna og ætlar svo að hoppa yfir mig. Hann hefur bara ekki drifið alla leið,“ segi Árni Freyr.Árni Freyr borinn af velli í gær.Vísir/DaníelMarkvörðurinn hlaut þungan heilahristing en annars er í lagi með Árna Frey sem leysti Jonas Sandqvist af í marki Keflavíkur í gærkvöldi. „Ég fór í myndatöku og læknarnir sögðu að nú tæki bara við hvíld. Þó þetta hafi verið þungur heilahristingur þá er þetta ekkert meira en það. Ekkert höfuðkúpubrot eða neitt þannig. Ætli ég þurfi ekki að hvíla í svona viku eða rúmlega það,“ segir Árni Freyr Ásgeirsson.Sindri Kristinn Ólafsson, strákur fædur 1997, kom inn á í stað Árna Freys á 55. mínútu. Hann hélt hreinu í sínum fyrsta leik í meistaraflokki á Íslandsmóti en liðin skildu jöfn, 1-1. Hann verður væntanlega aftur á varamannabekknum þegar Keflavík mætir Stjörnunni í 8. umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudaginn en þá verður sænski markvörðurinn Jonas Sandqvist kominn aftur.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Kristján: Í lagi með Árna Frey Þjálfari Keflavíkur segir að það sé verið að tjasla saman markverðinum Árna Frey Ásgeirssyni eftir þungt höfuðhögg. 10. júní 2014 22:21 Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Fram - Keflavík 1-1 | Höfuðmeiðsli og rautt spjald í Dalnum Fram og Keflavík skildu jöfn í fyrsta Pepsi-deildarleik ársins á Laugardalsvellinum. 10. júní 2014 08:30 Markvörður Keflavíkur borinn af velli Svo virðist sem að Árni Freyr Ásgeirsson hafi hlotið slæm höfuðmeiðsli í leik Keflavíkur og Fram í kvöld. 10. júní 2014 20:37 Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Manchester City - Liverpool | Risaslagur í bikarnum Enski boltinn Trump styður við bakið á Tiger Golf Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Íslenski boltinn Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Fótbolti Fleiri fréttir „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals „Vil sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á“ Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Davíð Smári hóf sína eigin bikarvörn á sigri Upplifunar- og gæðastjórinn segir mikilvægt að rýna í xF Sérfræðingarnir svara: Spenntastir fyrir nýju Skagamönnunum og strákunum fyrir norðan Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Sjá meira
Kristján: Í lagi með Árna Frey Þjálfari Keflavíkur segir að það sé verið að tjasla saman markverðinum Árna Frey Ásgeirssyni eftir þungt höfuðhögg. 10. júní 2014 22:21
Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Fram - Keflavík 1-1 | Höfuðmeiðsli og rautt spjald í Dalnum Fram og Keflavík skildu jöfn í fyrsta Pepsi-deildarleik ársins á Laugardalsvellinum. 10. júní 2014 08:30
Markvörður Keflavíkur borinn af velli Svo virðist sem að Árni Freyr Ásgeirsson hafi hlotið slæm höfuðmeiðsli í leik Keflavíkur og Fram í kvöld. 10. júní 2014 20:37