Forsætisráðherrann hefur tekið þátt í einni sérstakri umræðu af 45 Stefán Árni Pálsson skrifar 19. mars 2014 09:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur tekið þátt í einni sérstakri umræðu af 45 á yfirstandandi þingi. visir/daníel/gva
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur tekið þátt í einni sérstakri umræðu af 45 á yfirstandandi þingi. Þetta kom fram í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun en Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, sagði í þættinum að hann og fleiri stjórnarandstöðuþingmenn hafi ekki fengið svör við beiðnum um slíkar umræður. Guðmundur vísaði til beiðna um sérstaka umræðu um fullveldismál, gjaldeyrishöft og styrki til húsverndunar. Guðmundur Steingrímsson og og Unnur Brá Konráðsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, voru gestir þáttarins og ræddu þau þingstörfin. „Það virðist vera bara einfaldlega rauður þráður að forsætisráðherra svarar ekki beiðnum þingmanna um sérstaka umræðu. Það er mjög merkilegt. Það er ég hef aldrei séð svona áður,“ sagði Guðmundur og bætti við að af 45 umræðum sem hefðu farið fram á kjörtímabilinu hefði forsætisráðherra mætt í eina. Unnur Brá sagði að stundum henti ekki sá tími sem þingforseti og þing gefi til umræðu þegar þingmenn eru í öðrum störfum en vissulega þyrfti að skoða málið.Nennir ekki að bíða lengur „Ég nenni ekki lengur að bíða eftir hæstvirtum forsætisráðherra, að hann komi hingað og tali við mig um afnám gjaldeyrishafta og fer fram á að hæstvirtur fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, geri það,“ sagði Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, í ræðustól á Alþingi í gær. Þá sagði Guðmundur frá því að hann hafi lagt inn beiðni um sérstakar viðræður við forsætisráðherra fyrir sjö vikum og engin viðbrögð fengið. Sigmundur var ekki staddur á Alþingi í gær en hann er staddur erlendis í einkaerindum. „Ég hef haft beiðni fyrirliggjandi um sérstaka umræðu við hæstvirtan forsætisráðherra síðan 27. janúar um að koma hingað og ræða við okkur þingmenn um afnám gjaldeyrishafta og samninga við erlenda kröfuhafa, sem er málefni sem hæstvirtur forsætisráðherra ræddi töluvert og af mikilli ákefð í kosningabaráttunni síðustu. Þessari beiðni hefur semsagt ekkert verið sinnt. Það er mjög óvenjulegt,“ sagði Guðmundur á þinginu í gær. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, gagnrýndi einnig forsætisráðherrann á þinginu í gær og sagði: „Er þetta boðlega framkoma, virðulegi forseti, gagnvart Alþingi? Ég vil bara fá svör um það því þetta gengur ekki lengur,“ sagði Katrín.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira