Hlutfall þeirra sem eru á negldum dekkjum hefur farið minnkandi Stefán Árni Pálsson skrifar 19. mars 2014 13:33 Síðustu þrjú ár hefur VÍS kannað ástand dekkja í upphafi hvers árs. visir/anton
Síðustu þrjú ár hefur VÍS kannað ástand dekkja í upphafi hvers árs á tjónabílum sem koma á tjónaskoðunarstöð félagsins. Kannanirnar þrjár sýna svipaða stöðu hvað varðar sumardekkin, um 12% bíla voru á þeim þó svo að veturinn hafi staðið yfir í nokkra mánuði þegar könnunin var gerð en þetta kemur fram í frétt frá VÍS. Þar kemur fram að hlutfall þeirra sem eru á negldum dekkjum hefur farið minnkandi. Í upphafi þessa árs voru 17% bíla á negldum dekkjum miðað við um fjórðung árin tvö þar á undan. Þeir sem hafa farið af negldum dekkjum virðast fara yfir á vetrardekk. Hlutfall þeirra hefur aukist en hlutfall heilsársdekkja staðið í stað eða verið í kringum 35%. Í hverri könnun hafa 100 bílar verið skoðaðir og til að geta borið tjónabíla saman við aðra bíla í umferðinni var í ár gerð könnun á 100 bílum til að hafa samanburðarhóp. Fram kemur í frétt VÍS að þar hafi eingöngu 2% bílanna verið á sumardekkjum. Hlutfall negldra dekkja var svipað og í könnuninni sem var gerð á tjónabílum í ár en hlutfall vetrardekkja 65% sem er mun hærra en á tjónabílum og hlutfall heilsársdekkja eingöngu 14%. Einnig var kannað hvort bílarnir væru á fleiri en einni tegund af dekkjum. Árin þrjú á tjónabílum voru 82%-85% bílanna á sömu dekkjunum allan hringinn en í samanburðarhópnum var þetta hlutfall 92%. Þar sem fleiri en ein tegund var undir var algengast að samstæða væri á milli framdekkja og afturdekkja, þó svo sumir bílar væru á þremur eða jafnvel fjórum mismunandi tegundum dekkja.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira