Sálfræðiþjónusta gegn brotthvarfi úr framhaldsskólum Birta Björnsdóttir skrifar 20. mars 2014 20:00
Brottfall nemenda úr framhaldsskólum hefur verið talsvert í umræðunni og í fréttum Stöðvar 2 í gær sögðum við frá því að brottfallið er talið kosta samfélagið um 52 milljarða króna árlega. Það er því ljóst að mikill ávinningur felst í því að minnka brotthvarf nemenda úr skólum og voru hugmyndir þess efnis kynntar á þingi Sálfræðingafélags Íslands sem fram fór um helgina. Þar var bent á mikilvægi sálfræðiþjónustu fyrir framhaldsskólanemendur, það hafi meðal annars sýnt sig í tilraunaverkefni sem hefur verið í gangi í Verkmenntaskólanum á Akureyri undanfarin tvö ár, þar sem sálfræðingur hefur verið nemendum innan handar. „Nýjar tölur frá Menntamálaráðuneytinu gefa til kynna að brottfall vegna andlegra veikinda í Verkmenntaskólanum á Akureyri sé heldur minna en í hinum skólunum sem tóku þátt í rannsókninni. Það er svo sem ekki búið að útiloka neinar aðrar breytur en þetta gefur engu að síður góðar vísbendingar," segir Hjalti Jónsson, sálfræðingur hjá VMA. Hann segir sömu rannsókn sýna fram á það að stór hluti nemenda falli úr skóla vegna andlegra veikinda, sálfræðiþjónusta ætti því að geta hjálpað í mörgum þeirra tilfella, sem leiði af sér sparnað fyrir samfélagið. Þá sé viðvera sálfræðings einnig mikilvæg til að sporna við fordómum gegn andlegum veikindum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir krakkana að sjá sálfræðinginn á vappi með enskukennaranum og upplifa að sálfræðingurinn sé hluti af hefðbundnu skólalífi. Það færir þjónustuna nær krökkunum, eyðir fordómum og eykur líkurnar á því að hægt sé að taka fyrr á málum og koma þannig í veg fyrir vanda sem annars nær að vaxa gríðarlega ef ekkert verður að gert," segir Hjalti.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira