Markviss notkun skimunarprófa skilar árangri í Reykjanesbæ Stefán Árni Pálsson skrifar 19. mars 2014 16:52 Prófið gefur kennurum upp nákvæma stöðu nemenda í hljóðkerfis og hljóðavitund, bókstafa og hljóðaþekkingu og málskilningi og orðaforða. visir/vilhelm
Skimunarprófið leið til læsis er lagt fyrir í fyrsta bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar um mánaðamótin september október ár hvert en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ. Prófið gefur kennurum upp nákvæma stöðu nemenda í hljóðkerfis og hljóðavitund, bókstafa og hljóðaþekkingu og málskilningi og orðaforða. Hingað til hefur prófið einungis verið notað til að auka gæði kennslu í grunnskólum bæjarins. Ákveðið var að greina niðurstöður nemenda enn frekar eftir því á hvaða leikskólum þau höfðu verið. Að því búnu var niðurstöðum skilað til hvers leikskóla fyrir sig, þar sem niðurstöður prófs sem lagðar eru svo snemma fyrir í grunnskóla gefa einnig sterkar vísbendingar um það hversu vel nemendur eru undirbúnir til grunnskólagöngu. Niðurstöður voru strax notaðar til að rýna í innra starf leikskólanna. Prófið hefur ekki verið notað með þessum hætti áður að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra sem sagði ánægjulegt að geta nýtt upplýsingarnar á báðum skólastigum. Gylfi segir að markviss notkun skimunarprófa sé hluti af verklagi Framtíðarsýnar Reykjanesbæjar, Sandgerði og Garðs sem miðar að því að koma leik og grunnskólum sveitarfélaganna í fremstu röð á landsvísu. Hluti af þessari framtíðarsýn er að stjórnendur í skólunum deili niðurstöðum skimunarprófa með það að markmiði að allir skólar tileinki sér þá kennsluhætti sem reynslan sýnir að virkar best. Skilvirk kennslufræði dreifist því hratt á milli skóla á Reykjanesi. Unnið hefur verið eftir þessu verklagi í þrjú ár og hafa miklar námslegar framfarið orðið í grunnskólum sveitarfélaganna, auk þess sem börn koma nú betur undirbúin undir grunnskólagöngu en áður í móðurmáli og stærðfræði.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira