Sigmundur Davíð með 16,7% svörun en Kristján Þór 87,5% Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. mars 2014 09:07 Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, hefur gagnrýnt Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fyrir óhóflegan drátt á því að bregðast við beiðnum um sérstaka umræðu í þinginu. Fréttablaðið/GVA
Með því að taka þátt í sérstakri umræðu um stöðu aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið um miðjan janúar hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra brugðist við 16,7 prósentum beiðna þingmanna sem beint hefur verið til hans um þátttöku í sérstökum umræðum á þinginu á yfirstandandi kjörtímabili. Lægra svarhlutfall er bara að finna hjá Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra, núll prósent, en hann hefur ekki orðið við einu beiðninni sem beint var til hans. Langhæst svarhlutfall er hjá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra, 87,5 prósent, en hann hefur verið til svara í sjö umræðum af þeim átta sem hann hefur verið beðinn um að vera viðstaddur. Athygli vakti í fyrradag þegar Guðmundur Steingrímsson, þingmaður og formaður Bjartrar framtíðar, kvaðst ekki bíða lengur eftir að forsætisráðherra brygðist við beiðni um umræðu frá honum og beindi erindi sínu frekar til fjármálaráðherra. „Árni Páll fékk hann til að mæta í sérstaka umræðu um stöðu aðildarviðræðna við ESB 16. janúar. Hann bíður hins vegar enn eftir að Sigmundur svari hvort hann ætli að mæta í umræðu um kjarasamninga, sem Árni Páll bað um fyrir margt löngu,“ segir Guðmundur.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur tekið þátt í einni sérstakri umræðu á Alþingi á kjörtímabilinu. Fréttablaðið/DaníelSjálfur segist hann hafa beðið í fimm mánuði eftir að forsætisráðherra mætti í umræðu um fullveldishugtakið áður en hann gafst upp. Þingmenn geta bara lagt fram eina beiðni í einu um sérstaka umræðu. Guðmundur lagði í framhaldinu fram beiðni um sérstaka umræðu um gjaldeyrishöftin, en beindi henni svo til Bjarna Benediktssonar í staðinn. Að auki bíður Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, sérstakrar umræðu um menningarminjar í tengslum við styrki til húsverndar og Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, umræðu um hleranir. Annars segist Guðmundur telja að það ætti að vera Sigmundi Davíð áhyggjuefni hversu fáar fyrirspurnir hann fái, til dæmis borið saman við fjármálaráðherra. „En þar sem þær eru ekki fleiri hefði maður haldið að hann hefði tíma til að svara.“Segir forsætisráðherra síður fá beiðnir Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, bendir á að Björt framtíð hafi beðið um 12 sérstakar umræður við ráðherra, fengið átta og þrjár hafa verið kallaðar aftur. „Það er því aðeins ein beiðni BF um sérstakar umræður við ráðherra sem bíður. Beiðnum BF um sérstakar umræður við ráðherra hefur því í heild verið mjög vel sinnt,“ segir hann. Í almennu samhengi sé einnig mjög eðlilegt að forsætisráðherra fái fæstar beiðnir um sérstakar umræður þar sem hann fari með fæsta málaflokka. Í því ljósi geti tæplega talist sanngjarnt að setja mál fram með þeim hætti að forsætisráðherra hafi bara tekið þátt í einni af 46 sérstökum umræðum sem farið hafi fram á kjörtímabilinu. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis hafi nú bara beðið forsætisráðherra beiðni Guðmundar Steingrímssonar um umræðu um afnám gjaldeyrishafta og samninga við erlenda kröfuhafa gömlu bankanna. „Hún hefur nú verið afturkölluð og færð á fjármálaráðherra enda hefði málshefjandi mátt vita að hún væri betur vistuð þar, eða vissi hann ekki að forræði afnáms gjaldeyrishafta er hjá fjármálaráðherra?“ segir Sigurður Már.
Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Innlent Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Erlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Fleiri fréttir Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Sjá meira