Vistvænan kjúkling á markað Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 20. mars 2014 17:15 Framkvæmdir standa nú yfir í Gunnarshólma. Mynd/Rafn Sig
Vistvænn kjúklingur hefur aldrei verið framleiddur hér á landi, en þessu ætlar fyrirtækið Litla gula hænan að breyta. Elva Björk Barkardóttir, Margrét Gunnarsdóttir og Jóna Margrét Kristinsdóttir, stofnendur fyrirtækisins, sáu tækifæri til nýbreytni og gripu það. Fyrirtækið, sem hefur höfuðstöðvar í Gunnarshólma við Suðurlandsveg, stendur nú í framkvæmdum á gamla bóndabýlinu sem þar stendur. Framleiðsla hefst í sumar milli júní og ágúst, ef allt fer eftir áætlun. Íslenskir neytendur hafa ekki getað valið um að kaupa vistvænan, íslenskan kjúkling hingað til, þar sem varan hefur ekki verið á boðstólum. Vistvæn ræktun felur það í sér að mun færri kjúklingar eru á hvern fermetra, og að fuglarnir hafa frjálsan aðgang að útisvæði. Þetta gefur þeim frekari tækifæri til eðlislægrar hegðunar, eins og að kroppa í jörðina og leita sér skordýra. Velferð fuglanna í fyrirrúmi „Okkur er annt um dýr, og við viljum að kjúklingarnir okkar hafi það sem allra best á þessari stuttu ævi sinni,“ sagði Elva Björk í viðtali við Fréttablaðið. „Við erum núna að skoða möguleika á að fara aðrar leiðir í fóðri. Okkur langar að gefa þeim óerfðabreytt eða lífrænt fóður.“ Kjúklingarnir verða að sögn Elvu alveg jafn stórir og óvistvænir kjúklingar, ef ekki stærri. Vistvænir kjúklingar lifa lengur, þar eð þeir lifa lengur í vistvænu umhverfi. Mörgum finnst bragð af vistvænum kjúklingum frábrugðið hinum venjulegu. „Það er náttúrulega misjafnt, en almennt séð vill fólk meina að hann sé bragðmeiri, og sjálfri finnst mér vera sterkara bragð af honum,“ segir Elva. Vistvænu kjúklingarnir verða einhverju dýrari, þar eð framleiðslan er kostnaðarsamari, en Litla gula hænan mun hafa framleiðslugetu upp á 4.000 kjúklinga eða svo. Fyrirtækið á í viðræðum við fjölda matvöruverslana enda ný vara sem slík mjög eftirsótt. „Varan okkar verður seld í ýmsum verslunum, og seinna meir erum við jafnvel að skoða að selja beint frá býli líka, þá getur fólk komið á svæðið og keypt beint af okkur.“ Hægt er að fylgjast með starfsemi og þróun fyrirtækisins á samnefndri Facebook-síðu Litlu gulu hænunnar sem og vefsíðu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Sjá meira