„Tækifæri fyrir skemmtilegt fólk að hittast“ Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 20. mars 2014 13:15 "Þetta getur leitt til alls mögulegs. Kannski ákveður Auður að bjóða sig fram til borgarstjóra,“ sagði Jón og þau Auður Lára skellihlógu bæði. VÍSIR/GVA „
Það er skemmtilegt að vera komin í Ráðhúsið og hitta borgarstjórann,“ segir Auður Lára Sigurðardóttir, 29 ára fötluð kona, sem fékk tækifæri á að kynnast störfum borgarstjórans Jóns Gnarr í dag í tilefni Fyrirmyndardagsins. Fyrirmyndardagurinn er dagur þar sem fyrirtæki bjóða atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að fylgja starfsmanni eftir í sínu fyrirtæki eða stofnun í einn dag eða hluta úr degi. Dagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á Íslandi 4. apríl. Vinnumálastofnun stendur að deginum og hugmyndin er a um árlegan viðburð verði að ræða. Jón Gnarr tók forskot á daginn og bauð einum atvinnuleitanda að fylgja sér eftir í dag. Auður Lára var mætt í Ráðhúsið um klukkan 11 að hitta Jón.Frábært verkefni og gott tækifæri Blaðamaður og ljósmyndari Vísis hittu þau Auði Láru og Jón í Ráðhúsi Reykjavíkur. Auður Lára og Jón ræddu ýmislegt sín á milli, meðal annars um hlutverk Jóns sem Georg Bjarnferðarson og fór vel á með þeim. Auður Lára býst við því að læra eitthvað í dag. „Ég vona það líka,“ sagði hún. En þetta er í fyrsta sinn sem Auður Lára fer í heimsókn á vinnustað til að kynna sér starfsemi. Viðbrögð fyrirtækja og stofnana við þessum degi hafa verið mjög góð að sögn forsvarsmanna dagsins. Auður Lára og Jón sögðu að fjöldi vinnustaða myndu taka þátt í þessum degi. Jón bjóst ekki við því að fleiri kæmu til hans er einhverjir myndu mæta í kynningu í Ráðhúsinu. „Þetta er gert til þess að kynna ákveðin atvinnutækifæri fyrir fötluðum. Sem þeir annars hefðu kannski ekki uppgötvað,“ sagði Jón. „Þetta getur leitt til alls mögulegs. Kannski ákveður Auður að bjóða sig fram til borgarstjóra,“ sagði Jón og þau Auður Lára skellihlógu bæði. „Gæti verið, sjáum til,“ svaraði Auður Lára. Jón sagðist algerlega viss um að Auður yrði frábær borgarstjóri. „Mér finnst þetta bara frábært verkefni og tækifæri fyrir skemmtilegt fólk að hittast og skiptast á upplýsingum og skapa tækifæri og fá nýjar hugmyndir,“ sagði Jón.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira