Neita að hafa notað skattfé við endurskipulagningu Samúel Karl Ólason skrifar 20. mars 2014 12:11 Vísir/GVA
Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir skattfé ekki hafa verið notað við fjárhagslega endurskipulagningu Hótels Sögu ehf. Þetta segir hann í yfirlýsingu vegna fréttaflutnings Kjarnans, sem hann segir rangan. „Fullyrðingar um að skattfé hafi verið notað við fjárhagslega endurskipulagningu Hótels Sögu ehf. eru algjörlega úr lausu lofti gripnar. Fjármagn sem merkt er Bændasamtökum Íslands á fjárlögum vegna lögbundinna verkefna var ekki og hefur aldrei verið notað í tengslum við eignaumsýslu samtakanna. Allt þetta fjármagn fer í verkefni samkvæmt búnaðarlagasamningi,“ segir í tilkynningunni. Fjárframlög samkvæmt búnaðarlagasamningi 2013 skiptust, samkvæmt tilkynningunni, í eftirtalin verkefni: 87,0 milljónir í búfjárræktarstarf, þ.e. til kynbótaskýrsluhalds, kúasæðinga og ræktunarstöðva. 338,0 milljónir í ráðgjafarþjónustu til bænda. 60,0 milljónir í styrki til bænda vegna kornræktar, hreinsunar affallsskurða auk 3,5 milljóna til bænda vegna aðlögunar að lífrænni ræktun. „Í meginatriðum fól fjárhagsleg undurskipulagning félagsins í sér að hlutafé Hótels Sögu ehf. var hækkað um 250 milljónir króna. Bændasamtökin skráðu sig fyrir öllum hlutunum. Þá hafi skuldir félagsins lækkað vegna afskrifta bæði lánveitenda og Bændasamtaka Íslands, auk þess sem áhvílandi lánum var skuldbreytt.“ Þá framseldu félagið og Bændasamtökin Arion banka öll hlutabréf í Hóteli Íslandi ehf., en bankinn seldi síðar fasteign Hótels Íslands við Ármúla í Reykjavík. Áðurnefnd hlutafjárhækkun var fjármögnuð að stærstum hluta með lánsfé, 165 milljónir króna, og að hluta með sjálfsaflafé, 85 milljónir. Þá var þriðja hæð Bændahallarinnar við Hagatorg veðsett.
Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Innlent Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Innlent Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Erlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Fleiri fréttir Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Sjá meira