Ýtt á eftir skuldafrumvörpum ríkisstjórnarinnar Heimir Már Pétursson skrifar 20. mars 2014 13:47 Helgi Hjörvar ýtti spurði forsætisráðherra hvar frumvörp um skuldaniðurfærslu heimilanna, lyklafrumvarp og um afnám verðtryggingar væru á Alþingi í dag. vísir/daníel
Gengið var á eftir því við forsætisráðherra á Alþingi í morgun hvað liði framleggingu frumvarpa um afnám verðtryggingar, skuldamál heimilanna og lyklafrumvarp. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir menn hafa áhyggjur af því að verðbólga éti upp leiðréttingar verðtryggðra lána án afnáms verðtryggingar. Frumvörp um stærstu kosningamál Framsóknarflokksins eru í undirbúningi í stjórnarráðinu en hafa enn ekki litið dagsins ljós á Alþingi. Frestur til að leggja fram frumvörp á vorþingi rennur út um mánaðamótin án þess að beita þurfi afbrigðum.Helgi Hjörvar þingflokksformaður Samfylkingarinnar vakti athygli á þessu á Alþingi í morgun. „Hæst virtur forsætisráðherra, hvar er frumvarp um afnám verðtryggingarinnar? Hvar er lyklafrumvarpið,“ spurði þingmaðurinn og bætti við að margir teldu boðað frumvarp um skuldaleiðréttingu verðtryggðra lána heimilanna verða gagnslaust án afnáms verðtryggingarinnar. „Að 4 % verðbólga muni éta upp alla 72 milljarða skuldaleiðréttingu,“ bætti Helgi við. Þingmenn Framsóknarflokksins hefðu lagt áherslu á afnám verðtrygingar til framtíðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði nægan tíma eftir af tíma vorþings til að afgreiða ýmis mikilvæg mál. „Þess vegna er ánægjulegt, að ég gat ekki skilið háttvirtan þingmann öðruvísu en að hann væri að taka undir ákall um afnám verðtryggingar. Þá hefur bæst við óvæntur liðsmaður í þeirri baráttu,“ sagði forsætisráðherra. Hann vildi hins vegar róa Helga með áhyggjur hans af því að verðbólga muni í millitíðinni éta upp 72 milljarða leiðréttingu verðtryggðra lána. „Það gerist ekki vegna þess að á meðan verðtryggingin er til staðar, og breytir engu um áform um afnám hennar, en á meðan hún er til staðar er leiðréttingar hlutinn verðtryggður líka,“ sagði Sigmundur Davíð. „Spurt var, hvað líður frumvörpum um tvö lykilloforð ríkisstjórnarinnar og Framsóknarflokksins. Afnám verðtryggingar anars vegar og lyklafrumvarpið hins vegar. Hæstvirtur forsætisráðherra átti engin svör,“ sagði Helgi Hjörvar. „Virðulegur forseti, ég var farinn að halda eftir fyrri fyrirspurn háttvirts þingmanns að honum tækist í fyrsta skipti í mínu minni að komast í gegnum heilan fyrirspurnartíma eða fyrirspurn án þess að fara út í verulegan skæting. En að sjálfsögðu gekk það ekki eftir,“ sagði forsætisráðherra. Vinna standi yfir varðandi útfærslu á afnámi verðtryggingar sem byggi á niðurstöðum sérfræðihóps þar að lútandi eins og þingmanninum væri kunnugt um.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Sjá meira