Rúmlega fimm þúsund Reykvíkingar tóku þátt í íbúakosningunum Betri hverfi Stefán Árni Pálsson skrifar 20. mars 2014 16:04 vísir/gva
Alls tóku 5.272 Reykvíkingar þátt í íbúakosningunum Betri hverfi 2014 en í þeim forgangsraða íbúar smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfum borgarinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. Kosningaþátttaka var hæst í Hlíðunum, næstmest í Vesturbæ og Grafarholti-Úlfarsárdal. Konur eru alls staðar fleiri í hópi þátttakenda en karlar. Kosningarnar fóru fram dagana 11. – 18.mars og notuð var innskráningarþjónusta island.is til auðkenningar. Var þetta í þriðja sinn sem Reykjavíkurborg stendur fyrir íbúakosningum með þessu sniði. Í kosningunum völdu Reykvíkingar 78 verkefni í hverfum borgarinnar sem koma til framkvæmda á þessu ári og verður 300 milljónum varið til þeirra eins og síðustu tvö ár. Kosningarnar eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg. Kosningaþátttaka var ívið minni en í fyrri kosningum. Í ár var hún 5.7% í heildina en 6.3% í fyrra. Á kjörskrá voru 96.854 íbúar en allir sem voru orðnir 16 ára um áramót og eiga lögheimili í Reykjavík gátu tekið þátt. Hæst þáttökuhlutfall í öllum hverfum er hjá kjósendum á aldrinum 30 – 50 ára en gera má ráð fyrir að það sé fólkið sem hefur ákveðið fasta búsetu í ákveðnum hverfum og vill helst hafa áhrif á lífsgæði í hverfinu sem það býr í. Yfir 400 hugmyndir bárust frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2014 á Betri Reykjavík sem opinn var fyrir innsetningu hugmynda í nóvember á síðasta ári.Hér má sjá verkefnin sem íbúar völdu í kosningunum.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira