Búist við fjörugu skemmtanalífi annað kvöld Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar 19. apríl 2014 21:23 Markús Fry vaktstjóri á Slippbarnum á von á æsilegu djammkvöldi annað kvöld.
Þó svo að páskahelgin sé mikil ferðahelgi og margt um að vera víða um land er einnig mikið fjör í miðbænum þessa helgi. Skemmtanalífið er blómlegt alla páskahelgina og mikill erill á skemmtistöðum. „Það er reyndar frekar rólegt hjá okkur í kvöld, en það er setið á öllum borðum samt. Það er ekki sama partýstemning og var í gær, þá var mikið um djamm. Við eigum von á að það verði meira fjör á morgun," segir Markús Fry vaktstjóri á Slippbarnum um páskastemninguna á staðnum. „Það er mikið af túristum í Reykjavík hérna um páskahelgina, en ég held samt að okkar gestir séu svona 70% Íslendingar þessa stundina. Við erum náttúrulega vinsælasti barinn í bænum.“ Markús segir að þéttsetið sé á öllum borðum og að margir gestir hafi sótt staðinn alla páskana. „Þess má samt geta að við vorum að vígja glænýjan kokteilaseðil í fyrradag. Það gæti útskýrt aukna traffík. Laugardagurinn um páska er venjulega rólegri en sunnudagurinn, enda heilagur dagur á morgun og allt lokar fyrr. Það verður hinsvegar hefðbundinn opnunartími annað kvöld og þá er ekkert heilagt lengur.“ Starfsmaður Hressingarskálans tekur í sama streng. "Það var brjálað að gera hjá okkur í gær og augljóslega margir að skemmta sér. Það er rólegra í kvöld og eins og stendur er staðurinn pakkaður af túristum. Við eigum von á meiri látum á morgun enda opið til hálffimm þá."
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent „Það bara fannst ekki neitt“ Innlent Fleiri fréttir Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Sjá meira