Mikil viska sem fremstu markþjálfar okkar miðla Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. desember 2014 10:15 "Minn áhugi snýst um fólk sem er pínulítið týnt og þarf á leiðsögn að halda,“ segir Ásta Guðrún. Vísir/Ernir „
Markþjálfun snýst um uppbyggilega skapandi hugsun og stjórnun einstaklinga. Nú eru tíu ár frá því farið var að kenna hana hér á landi og því verður fagnað með afmæli í Norðurljósasal Hörpunnar í dag milli klukkan 9 og 12.30,“ segir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir. Ásta er nemandi í markþjálfun hjá fyrirtækinu Evolvia sem skipuleggur afmælisráðstefnuna. Hún tekur fram að aðgangur sé ókeypis á ráðstefnuna og allir séu velkomnir. „Tíu af fremstu markþjálfum Íslands munu segja frá starfi sínu. Það er mikil viska sem þeir ætla að deila með áheyrendum en óvænt skemmtiatriði og ýmislegt fleira er á dagskránni. Í hléinu verðum við tíu, fimmtán markþjálfanemar úti um allt ef fólk vill prófa að koma í viðtal,“ segir hún og kveðst vona að fólk komi forvitninnar vegna og kynni sér þá hugmyndafræði sem markþjálfun snúist um. Það er Matilda Gregersdóttir sem er eigandi Evolvia og frumkvöðull í markþjálfunarkennslu hér á landi. Í upphafi hét fyrirtækið Leiðtogi og var stofnað 2004. Markþjálfun er einnig kennd í Háskóla Reykjavíkur. „Þetta er eins árs nám. Það er sama fyrirkomulag hjá báðum skólunum, bóklegt nám fyrir jól og verklegt eftir jól,“ segir Ásta Guðrún. „Verklega námið felst í að taka viðtöl. Ég þarf að skila vissum tímum í því og er þegar búin með þrjátíu af hundrað tímum. Til að byrja með fékk ég fólk til að koma í viðtal svo ég gæti æft mig en eftir því sem ég varð öruggari fór fólk að sækja í að koma oftar og sumir hafa gert samninga um frekari samtöl,“ segir hún. Ásta segir það einkum forstjóra og framkvæmdastjóra sem sótt hafi nám í markþjálfun en það nýtist líka hinum almenna borgara. „Minn áhugi snýst um fólk sem er pínulítið týnt og þarf á leiðsögn að halda. Margir eiga sér draum sem þeir vita ekki hvernig þeir eiga að fá uppfylltan. Markþjálfar líta á allt sem mikilvægt, hvort sem það er löngun manneskju til að skipta um vinnu, breyta bílskúrnum í hönnunarstofu eða hætta að drekka dietkók. Leiðsögnin spannar svo vítt svið. Markþjálfar eru bara hlutlausir en með alls kyns vinklum og spurningum hjálpa þeir fólki að finna lausnir sjálft. Sálfræðingar vinna oft úr vandamálum í fortíðinni. Það gerir markþjálfi ekki. Hann spyr bara: „Hvað ertu í dag? Hvert viltu fara?“
Mest lesið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið Fleiri fréttir Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Sjá meira