„Við eigum að standa með börnunum en ekki úreltu kerfi“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. apríl 2014 11:53 Auglýsing Halldórs féll í grýttan jarðveg hjá kennurum. Vísir/HVA „
Við eigum að standa með börnunum en ekki úreltu kerfi,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Auglýsing á vegum Halldórs vakti reiði kennara, en í henni segir meðal annars: „Skólakerfið hefur brugðist börnunum okkar en þrátt fyrir það fær það að hjakka í sama farinu án aðgerða.“ Þessi orð fengu Kennarasamband Íslands til þess að senda frá sér yfirlýsingu. Í henni segir: „Innihald auglýsingarinnar er einnig í fullkomu ósamræmi við orð Halldórs Halldórssonar, borgarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins, þegar hann ávarpaði þing KÍ á þriðjudaginn. Þar sagðist hann vera talsmaður samstarfs og sátta í skóla- og menntamálum. Halldór segir að með því að bregðast svona við séu kennarar að segja að þeir séu kerfið. „Kennarar eiga ekk að vera hluti af kerfinu, þeir eiga að gagnrýna kerfið. Þeir eru í fjötrum kerfisins, eins og nemendur og foreldrar.“En ef við horfum þrjá áratugi aftur í tímann, þá kemur í ljós að Sjálfstæðismaður hefur gegnt stöðu menntamálaráðherra í 23 ár. Ber Sjálfstæðisflokkurinn því einhverja ábyrgð á þessu kerfi sem þú segir að hafi brugðist? „Við berum öll ábyrgð á þessu. Við megum ekki fara í vörn fyrir þetta úrelta kerfi. Það er 200 til 300 ára gamalt. Við getum ekki verið sátt með að 30% drengja geta ekki lesið sér til gagns. Hver getur verið sáttur við það?“ spyr Halldór. Hann leggur til að allir leggist á eitt. „Það eiga allir að segja: „Já, breytum þessu kerfi.“ Við hljótum að vilja skoða þetta gaumgæfilega. Kennarar eiga ekki að verja þetta úrelta kerfi, þeir eiga að taka þátt í að bylta því.“
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Innlent Bein útsending: Sjónvarpsfréttir á Sýn í hádeginu Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Innlent Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Innlent Barnlaus leikskóli Innlent Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Innlent Fleiri fréttir Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Lögreglan lýsir eftir Ernu Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Bein útsending: Sjónvarpsfréttir á Sýn í hádeginu Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Þau skipa lista Samfylkingarinnar á Akranesi Vaktin: Þakka fólki fyrir að fara að tilmælum Státum af klárasta barþjóni Evrópu Love, Hannah og Pia í lagi en Curver ekki: Það þekkja mig allir með þessu nafni Ógni þjóðaröryggi að ekkert íslenskt kaupskip sé skráð hér á landi Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Almannavarnir í beinni og ótti um að launafólk verðleggi sig út af markaðnum Aflýsa og seinka flugferðum Sjá meira