300 milljónir króna í höndum Reykjavíkurbúa Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. mars 2014 12:00 vísir/gva
Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík, þar sem kosið verður um verkefni í hverfum borgarinnar, hófst á miðnætti í gær. Kosningarnar standa yfir dagana 11.-18. mars og kjósa íbúar þá á milli fjölmargra hugmynda sem fegra og bæta hverfin. Allir íbúar yfir 16 ára aldri hafa þátttökurétt. Yfirskrift kosninganna er Betri hverfi 2014 – Virkjum íbúalýðræðið.Betri hverfi 2014 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar. Verkefnið byggir á hugmyndum um að virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku. Verkefnið er með svipuðu sniði og Betri hverfi 2013 og er byggt á reynslu fyrri ára. Þetta er í þriðja sinn sem íbúum í Reykjavík gefst kostur á að kjósa um verkefni í hverfunum sínum í rafrænum kosningum með dulkóðuðum auðkennum. Kosningarnar eru með sama sniði og síðustu tvö ár á vef Betri Reykjavíkur.Skjáskot af vefnum Reykajvik.isvísir/skjáskotÁ síðustu tveimur árum hafa íbúar í Reykjavík kosið yfir 200 verkefni til framkvæmda í hverfum borgarinnar, sem Reykjavíkurborg hefur framkvæmt eða eru á undirbúningsstigi. Hefur Reykjavíkurborg varið 600 milljónum til þessara verkefna. Í ár verður 300 milljónum varið til nýrra verkefna í hverfunum sem íbúar forgangsraða í kosningunum. Auglýst var eftir hugmyndum frá íbúum í nóvember á síðasta ári og bárust yfir 400 hugmyndir sem hverfisráð og fagteymi á vegum borgarinnar fóru yfir. Nýja auglýsingu vegna verkefnisins, með borgarstjóranum Jóni Gnarr í aðalhlutverki, má sjá í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira