Tveir karlmenn yfirheyrðir vegna gruns um barnaníð Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 11. mars 2014 19:51 Myndin sýnir umfang rannsókarinnar.
Tveir íslenskir karlmenn hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um tengsl við alþjóðlegan barnaníðshring. Lögreglan lagði einnig hald á tölvubúnað vegna málsins. Einn maður til viðbótar er grunaður um aðild að málinu sem á uppruna sinn í Kanada. Rúv sagði frá þessu í kvöldfréttum. Eins og kom fram í fréttum Stöðvar 2 var hringurinn upprættur í nóvember og kanadíska lögreglan tilkynnti að hann teygði anga sína til Íslands. Rannsóknin hófst árið 2010 og stóð yfir í þrjú ár og telur lögreglan í Toronto sig hafa frelsað um 400 börn undan barnaníðingum á meðan á rannsókninni stóð. Í rannsókninni voru gerð upptæk 45 terabæti af gögnum og eins og fram kom í haust að yrði gögnunum staflað upp á pappírsformi, yrði stæðan á hæð við sjö og hálfa Hallgrímskirkju. Umfang málsins er því gríðarlegt. Rannsóknin sneri aðallega að fyrirtæki í Toronto sem seldi DVD diska og aðgang að efni á netinu sem sýndi kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Talið er að myndefninu hafi verið dreift til 94 landa. Fyrirtækið er grunað um að hafa borgað fólki fyrir að taka upp myndbönd með börnum í kynferðislegum athöfnum og selt þau svo áfram á heimasíðu sinni. Lögreglan lagði hald á hundruð þúsunda mynda og myndbanda. 348 manns voru handteknir í aðgerðinni og að því er segir í frétt Rúv voru 100 þeirra í Kanada og 248 í öðrum löndum. Þar segir jafnframt að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi haft málið til rannsóknar síðan beiðni þess efnis barst ríkislögreglustjóra frá Interpol í lok nóvember. Rannsóknin leiddi í ljós að þær íslensku IP-tölur sem komu upp í málinu mátti rekja til þriggja íslenskra karlmanna. Tveir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu og einn utan þess. Búið er að yfirheyra þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu og var þeim sleppt að lokinni skýrslutöku. Ekki liggur fyrir hvort þeir hafi dreift efninu en þeir eru grunaðir um vörslu þess.
Tengdar fréttir Barnaníðshringur til skoðunar hjá Ríkislögreglustjóra Tilkynningar kanadísku lögreglunnar um umfangsmikinn barnaníðshring sem hún hefur upprætt eru til skoðunar hjá Ríkislögreglustjóra. 20. nóvember 2013 10:16 Rannsökuðu alþjóðlegan barnaníðshring á Íslandi Lögreglan í Toronto tilkynnti í gær að 348 einstaklingar hefðu verið handteknir í umfangsmikilli rannsókn á alþjóðlegum barnaníðshring. Rannsókin teygði meðal annars anga sína til Íslands. 15. nóvember 2013 07:00 Gríðarlegt umfang barnaníðshrings: "Kaup voru gerð frá Íslandi“ Umfangsmikill barnaníðshringur sem kanadíska lögreglan tilkynnti í gær að hún hefði upprætt, teygði anga sína til Íslands. Kanadískur rannsóknarlögreglumaður segir lögregluyfirvöld hérlendis taka ákvarðanir um hvort brugðist verði við fyrirliggjandi upplýsingum í málinu. 15. nóvember 2013 20:30 Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira
Barnaníðshringur til skoðunar hjá Ríkislögreglustjóra Tilkynningar kanadísku lögreglunnar um umfangsmikinn barnaníðshring sem hún hefur upprætt eru til skoðunar hjá Ríkislögreglustjóra. 20. nóvember 2013 10:16
Rannsökuðu alþjóðlegan barnaníðshring á Íslandi Lögreglan í Toronto tilkynnti í gær að 348 einstaklingar hefðu verið handteknir í umfangsmikilli rannsókn á alþjóðlegum barnaníðshring. Rannsókin teygði meðal annars anga sína til Íslands. 15. nóvember 2013 07:00
Gríðarlegt umfang barnaníðshrings: "Kaup voru gerð frá Íslandi“ Umfangsmikill barnaníðshringur sem kanadíska lögreglan tilkynnti í gær að hún hefði upprætt, teygði anga sína til Íslands. Kanadískur rannsóknarlögreglumaður segir lögregluyfirvöld hérlendis taka ákvarðanir um hvort brugðist verði við fyrirliggjandi upplýsingum í málinu. 15. nóvember 2013 20:30